Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Blaðsíða 26
24
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008
Gunnar Bjarnason SH 25
dótturfélögum eigenda SH;
Tryggingamiðstöðinni hf. og Um-
búðamiðstöðinni hf. svo og
Reiknistofu Vesturlands.
Fiski- &
síldarmjölsverksmiðjan hf.
Þegar eigendur HO keyptu
eignir Kirkjusands hf. í Ólafsvík
1969, þá fylgdi hlutur þeirra í
FSÓ með í kaupunum, þannig að
eigendur HÓ eignuðust þar með
FSÓ að fullu. Verksmiðjustjóri
var ráðinn Hjálmtýr Agústsson.
FSÓ rak þá síldar- og loðnu-
bræðslu, sem nær eingöngu var
rekin sem beinamjölsverksmiðja
þar eð hráefnisgeymsla var mjög
takmörkuð og því ekki unnt að
taka við heilum skipsförmum af
hráefni (loðnu eða síld). Einnig
rak félagið lifrarbræðslu. Af verk-
smiðjunni stafaði veruleg loft-
mengun, bæði vegna illa þefjandi
hráefnis þegar verksmiðjan var í
vinnslu og einnig af hráefni í þró
þegar það varð gamalt m.a. vegna
tíðra bilana í verksmiðjunni.
Var því ráðizt í kaup á verk-
smiðju Stjörnumjöls í Örfirisey,
þegar eigendum bauðst að kaupa
vélar hennar með því skilyrði, að
þær yrðu fluttar brott. Var þetta
gert, vélarnar teknar niður í
Ríkharður Magnússon skipstjóri.
Ljósm. Björn Guðmundsson
Örfirisey og fluttar til Ólafsvíkur
og settar upp í verksmiðjuhúsi
FSÓ en eldri vélar teknar niður
og hent út. Þar eð þurrkari nýju
verksmiðjunnar var gufuþurrkari
með reykhreinsiturni þá varð
þetta til þess að mengun frá verk-
smiðjunni varð óveruleg og
einnig frá hráefnisþró þar eð bil-
anir urðu fátíðar. Einnig var
framleiðsla verksmiðjunnar miklu
betri vara vegna gufuþurrkunar í
stað eldþurrkunar.
Mb. Garðar II. SH 164
Árið 1974 áttu bræðurnir Björn
og Einar Kristjónssynir 142
brúttólesta skip í smíðum á Akur-
eyri. Þegar smíðinni var um það
bil að ljúka kom í ljós, að skipið
yrði miklu dýrara en samið hafði
verið um í upphafi og treystu þeir
bræður sér þá ekki til að leysa
Ólafiir Einarsson fiskifræðingur hjá Hafró.
Ljósm. Björn Guðmundsson
Guðmundur ólafsson og Þorgrímur Ólason sáu um ferskfiskmatið í Ólafsvík á þessum árum
Ljósm. Björn Guðmundsson.