Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Page 33
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008
31
Sjómannadagurinn í Ólafsvík 2007
Keppnisgreinar hófust við höfn-
ina kl. 13:00 á laugardeginum í
góðu veðri með hefðbundnum
keppnisgreinum s.s. kappróðri,
boðhlaupi og reiptogi og fleka-
hlaupi, sem er vinsælt meðal yngri
kynslóðarinnar. Skemmtisigling
var út á Víkina, sem alltaf er vin-
sæl meðal yngri sem eldri. A með-
an á því stóð flaug þyrla LHG
rétt yfir masturstoppa bátanna og
sýnd var björgun úr sjó.
Um kvöldið var sjómannahóf á
Klifi sem tókst mjög vel og var vel
sótt eða um 230 manns. Eftir að
kvöldverði lauk voru tvær sjó-
mannaskonur heiðraðar en það
voru þær Kristín Bjargmundsdótt-
ir og Sæunn Jeremíasdóttir. Þá
flutti Eydís Bergmann Eyþórs-
dóttir sjómannskona úr Stykkis-
hólmi minni sjómanna, sem var
mjög gott og vel flutt. Margt fleira
var á dagskrá og m.a. flutti Sig-
urður Scheving, eins og honum er
einum lagið, þátt í tali og mynd-
um frá útgerðarsögu Sverrisút-
gerðar ehf hér í Ólafsvík. Áður fór
með formála Gísli Marteinsson
skipstjóri frá sama félagi, en skor-
að var á Sverrisútgerðina á síðasta
sjómannahófi að vera með gam-
anmál á þessum sjómannadegi.
Eigendur Sverrisútgerðarinnar ehf
þau Erla Ormsdóttir og Mart-
einn Gíslason færðu Sjó-
mannagarðinum að gjöf ávís-
un að upphæð kr 200 þús og
var þeim fagnað með góðti
lófataki af gestum og Sjó-
mannadagsráði Ólafsvíkur
fyrir þennan góða hug til
garðsins.
Á hófinu var klappaður
upp heiðursgesturinn Jón
Arngrímsson rafvirkjameistari
í Ólafsvík en hann hefur í
áratugi þjónustað bæði útgerð
og fiskvinnslu með afbrigð-
um vel og var honum klapp-
að lof í lófa af veislugestum.
Fór hann með nokkur orð
eins og honum er einum lag-
ið. Veislustjórar voru tenórarnir
tveir, Davíð og Stefán og
skemmtu gestir sér konunglega
undir þeirra stjórn. I lok sjó-
mannahófs kom fram vilji hjá út-
gerðarmönnum í Ólafsvík að þeir
fjármögnuðu kaup á nýjum kapp-
róðrabátum og safnaðist góð fjár-
hæð. Báðir bátarnir Þróttur og
Þor eru orðnir yfir 30 ára gamlir
og farnir að láta á sjá.
Hljómsveitin Karma lék svo fyr-
ir dansi eftir að dagskrá var lokið.
Á sunnudeginum varð að flytja
hátíðarhöldin inn í kirkju vegna
veðurs en áður var lagður blóm-
sveigur að styttu sjómannsins í
Sjómannagarðinum. Ræðumaður
var Tryggvi Leifur Óttarsson
framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Is-
lands. Sjómenn þeir Gunnar
Gunnarsson og Jónas Gunnarsson
voru heiðraðir fyrir störf sín að
sjómennsku og fengu þeir heið-
ursorðu Sjómannadagsins og eig-
inkonur þeirra þær Ester Gunn-
arsdóttir og Jenný Guðmunds-
dóttir fengu blómavönd. Þá voru
veitt verðlaun fyrir keppnisgreinar
dagsins. Á milli atriða lék Efgeny
Makajef á saxafón.
Á eftir var sjómannamessa þar
sem sr. Magnús Magnússon
messaði. Kirkjukórinn söng undir
stjórn Veronicu Osterhammer og
organinsti var Lena Makajef og
sjómenn lásu ritningarlestra.
Klukkan 16:00 var opnað
fyrir leiktæki fyrir yngstu
börnin í húsnæði FMÍ og
sjómenn grilluðu fyrir þau og
var mikið fjör hjá þeim. Það
voru áhafnirnar á Aðalheiði
SH, Brynju SH og Guð-
mundi Jenssyni SH sem sáu
um hátíðarhöldin að þessu
sinni og stóðu þeir sig með
miklum ágætum og var vel
vandað til allra þátta. Þeir
sem kosnir voru til að sjá um
Sjómannadaginn 2008 voru
áhöfn og eigendur Ullu SH
og áhöfn Ólafs Bjarnasonar
Skemtntilegt sjónarhorn þar sent þyrlan kemur á eftir Ólafi
Bjarnasyni en flugmenn hennar sýndu listir sína íyrir farþegana
í skemmtisiglingunni.
Jón Arngrímsson raíVirkjameistari var heiðursgestur á sjómannaliófi.