Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Blaðsíða 34

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Blaðsíða 34
32 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008 Ofviðrið á Flæmska hattinum 1996 Frásögn Einars Guðjónssonar og Magnúsar Höskuldssonar Á árunum frá 1990 voru mörg íslensk skip á rækjuveiðum á Flæmska hattinum. Þetta veiði- svæði er um 200 sjómílur austan við Nýfundnaland og í um fimm sólarhringa siglingu frá Islandi. Veiðisvæðið er einskonar hattur eða hóll sem skipin voru að veiða á, bæði djúpt og grunnt. Aðal löndunarstaður íslensku skipanna var höfnin í Haarbor Grace á austurströnd Nýfundnalands og var 24 stunda sigling þaðan á miðin. Eins og nærri má geta gerir þarna oft mikil óveður og árið 1991 kom fellibylur yfir svæðið og skip fórust. Um þetta veður var gerð kvikmynd sem nefndist Perfect Storm og er mörgum eftir- minnileg sem séð hafa. Árið 1996, nánar tiltekið í september, var Snæfell SH 740 á veiðum á þessu svæði en skipið var þá í eigu Snæfellings hf og gert út frá Olafs- vík. Snæfellið er um 70 m á lengd og hið besta sjóskip að sögn skip- verja. Skipstjóri á Snæfellinu var Reynir Georgsson, reyndur skip- stjóri, og var skipið í sínum þriðja túr þarna á svæðinu þegar mikið óveður gerði. Meðal annarra skip- verja í 20 manna áhöfn á Snæfell- inu í þessum túr voru þeir Ölsar- arnir Einar Guðjónsson og Magn- ús Höskuldsson og er túrinn þeim mjög minnistæður. „Við vorum nýkomnir á veið- svæðið eftir löndurn í Haarbour Grace er þetta óveður skall á,“ segja þeir félagar þegar þeir voru inntir eftir þessum atburði. „Þetta óveður voru leifar af felli- bylnum Hortense, sem hafði gengið yfir og skipum hafði verið gert viðvart um, en þar sem langt var í land var ekki um margt að velja. Það voru mörg skip á svæð- inu bæði bæði rússnesk og íslensk og m.a. var Guðbjörgin ÍS á svæð- inu. Kanadíska herskipið Toronto kom öslandi upp að síðunni á okkur og kapteinninn spurði þá skullu þær ekki ofan á skipið. Snæfellið fór vel í sjó en það var ekki mikið sofið á meðan veðrið var sem verst. Við sáum oft til hinna skipanna sem voru nálægt okkur. Stundum þegar aidan fór undir skipin sást alveg aftureftir hálfum kjölnum og svo skullu þau niður í öldudalinn aftur. Versta veðrið stóð í einn og hálfan sólar- hring og þegar lægði var hægt var Magnús Höskuldsson og Einar Guðjónsson skipverjar á Snæfelli SH 740. Snæfell SH 740 og Snæfell SH 15 bæði í höfninni 1996. hvort að við vildum vera í vari við þá en Reynir skipstjóri afþakkaði það en þetta skip var miklu stærra en Snæfellið. Svo skellur á suð- vestan óveður og fór vindhraði upp í 40 m/sek og ölduhæðin var alveg í 25 m. Óveðrið geisaði í a.m.k. einn og hálfan sólarhring.“ Þar sem 12 ár eru síðan þetta skeði þá höfðu þeir Einar og Magnús samband við Veðurstofu íslands til að fá nánari upplýsingar um veðrið. Kristín Hermanns- dóttir, sem er veður- fræðingur hjá VÍ, sagði að samkvæmt hennar upplýsingum kæmu þær heim og saman við þeirra frásögn. „Þetta var rosaleg ólduhæð og þegar komið var upp í brú á meðan þessu stóð þá sáum við oft himinhá- ar öldur fyrir fram í Ólafsvík árið skipjð £n sem betUt fór að fara út á dekk og skoða um- merkin. Þá kom í ljós að varatog- hlerar sem festir voru með 18 mm keðjum upp í afturgálgan höfðu slitnað og þeir farið í sjóinn þannig að átök sjávar hafa verið mikil. Sem betur fór brotnuðu engar rúður í skipinu. Við vorum frá veiðum í tvo daga vegna þessa veðurs og við fréttum að einhver rússnesk skip höfðu fengið á sig brot og skemmst og er það engin furða,“ segja þeir félagar að lokum er þeir rifja þessa sjóferðasögu upp en hún er þeim að sjálfsögðu minnistæð. Rækjutúrarnir voru oft langir allt upp í 42 daga og liðið gátu um þrír mánuðir áður en menn komust heim. Nú eru engin íslensk skip þarna á veiðum en þess má geta í iokin að Snæ- fellið heitir nú Lómur og er gert út frá Eistlandi en eigandi þess er Guðmundur Svavarsson fyrrum útgerðarmaður í Ólafsvík. PSJ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.