Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Síða 36

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Síða 36
34 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008 „Framtíðin er björt“ Viðtal við útgerðarfeðgana Bárð Guðmundsson og Þorstein Bárðarson F.v. Þorsteinn Bárðarson, Ingibjörg Kristín Kristjánsdóttir, Ingibjörg Júlíusdóttir og Bárður Guð- mundsson en þau eru eigendur Breiðavíkur ehf. Kvöldið er fagurt og sól er sest þegar eigendur útgerðar- innar Breiðavíkur og feðgarnir Bárður Guðmundsson og Þor- steinn Bárðarson eru sóttir heim á heimili Bárðar í Mið- brekku í Ólafsvík. Feðgarnir taka blaðamanni fagnandi og setjast eftirvæntingarfullir gegnt honum inn í stofu með kaffi í krús albúnir að láta rekja úr sér garnirnar. Eftir hefð- bundið spjall um daginn og veginn, liðinn vetur og vaxandi vor eru kanónurnar stilltar og Bárður í sigti til að byrja með. Bárður, af bvaða bergi ertu brot- inni Eg er fæddur í Reykjavík 1953. Foreldrar mínir heita Jóhanna Bára Guðmundsdóttir og Guð- mundur Bjarnason. Foreldrar mínir bjuggu aldrei saman þannig að ég ólst upp fyrstu þrjú árin í vesturbæ Reykjavíkur hjá afa og ömmu í föðurætt, foreldrum Guðmundar föður míns, þeim Þórunni Pálsdóttur og Bjarna Nikulássyni. Þriggja ára að aldri fluttist ég til Isafjarðar með móð- ur minni og fósturföður, Þorláki Arnórssyni. Ég var hjá móður minni og fósturföður á ísafirði yfir vetrartímann næstu árin en fyrir sunnan hjá afa og ömmu yfir sumartímann allt þar til við flutt- um aftur suður til Reykjavíkur þegar ég var 10 ára og í borginni bjó ég áfram meðan ég var í for- eldrahúsum. Varðandi bergið sem ég er brotinn af þá má rekja það til Snæfellsness að hluta en teng- ing mín Snæfellsnesið er sterk því ég heiti eftir Bárði langafa mínum í móðurætt, sem bjó á sínum tíma í Gröf í Grundarfnði. Hvað segirðu mér af bjúskapar- stöðu ogfjölskylduhögum? Konan mín heitir Ingibjörg Júl- íusdóttir fædd 1954 og uppalin á Miðhúsum í Breiðavík. Við kynntumst suður í Hafnarfirði á sínum tíma og giftum okkur 1975. Við eignuðumst fjögur börn. Þorsteinn er elstur fæddur 1975. Næstur kom Kristinn fæddur 1977 en lést sama ár nokkurra vikna gamall. Jóhanna Kristín er þriðja fædd 1978 og yngstur er Vignir Már fæddur 1982. Mér skilst þið bafið biiið víða á þessum rúmti þrjátíu árum sem þið bafið btíið samaní Það fer eftir því hver metur. Sumum finnst við hafa búið víða og öðrum ekki. Við bjuggum fyrstu árin okkar í Hafnarfirði síð- an fluttum við suður með sjó til Sandgerðis og vorum þar í nokkur ár. Þegar níundi áratugurinn var tæplega hálfnaður fluttum við út á Hellissand. Árið 1992 fluttum við aftur í Hafnarfjörðinn en entumst ekki nema þrjú ár því Snæfellsnes- ið togaði í okkur þannig að snjóa- veturinn 1995 fluttum við til Ólafsvíkur og keyptum húsið hér í Miðbrekku. Við höfum tekið þetta hús alveg í gegn og endur- nýjað og gert upp það sem þurfti. Þorsteinn, égget ekki látið þigþaga svona lengi. Viltu segja mér aðeins afþér ogþinni œsku og uppeldi? Nöfn foreldra minna eru hér fram komin en ég er fæddur 1975 í Hafnarfirði þar sem foreldrar mínir bjuggu fyrstu árin. Annars eru mér minnisstæðir allir staðirn- ir sem við bjuggum á í æsku minni og flutningarnir milli þeirra. Fyrst Hafnarfjörður í frumbernsku, síðan í Sandgerði í fyrstu bekkjum grunnskóla, þá til Hellissands þegar ég var í 3. bekk. Grunnskólaprófi lauk ég á Hell- issandi en eftir það fluttum við í Hafnarfjörðinn og svo vestur aftur og í það skiptið til Ólafsvíkur en þá var ég eiginlega fluttur að heiman. Allir þessir flutningar kostuðu að maður missti vini og þurfti að eignast nýja vini og fé- laga á nýjum stað og það tók tíma og stundum tók það á. Hvað segirðu mér af þínum fiöl- skylduhögum? Konan mín heitir Ingibjörg Kristín Kristjánsdóttir fædd í Reykjavík 1975 en uppalin í Stykkishólmi. Við giftum okkur á liðnu ári 2007 og eigum tvö börn saman Ingibjörgu Eygló fædda
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.