Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Page 40

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Page 40
38 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008 Ræða á sjómannadegi á Heliissandi 2007 Erla Kristinsdóttir framkvæmdastjóri Rifi Kæru sjómenn og aðrir gestir, gleðilega hátíð. I mínum huga hefur sjómanna- dagurinn alltaf verið mjög stór há- tíð. Strax sem barn skynjaði ég til- hlökkunina og gleðina sem tengd- ist þessari helgi. Eg man óljóst eftir hátíðarhöldum á Drymbun- um en ég man vel eftir fyrstu há- tíðarhöldunum hérna á þessum stað og vígslu á styttunni Jöklur- um í grenjandi rigningu. Sjósókn og sjómennska hafa spilað stórt hlutverk í mínu lífi. Þegar ég var að alast upp voru sjó- menn eins og pabbi minn mikið minna heima heldur en sjómenn í dag eru. Varla var tekið helgarfrí alla vertíðina frá jantiar fram til páska. A haustin hélt pabbi oftast austur á land til síldar- og loðnu- veiða og kom þá ekki heim allan þann tíma. Er mér mjög minnis- stætt eitt sinn er mamma segir við okkur krakkanna að fara út í glugga og fylgjast með þegar pabbi kemur heim. Við biðum spennt í glugganum en sáum bara ókunnan mann koma. Við þeltktum ekki pabba okkar þar sem hann var í nýrri úlpu og bú- inn að láta sér vaxa skegg. Nýr hesmur I uppvextinum kynntist maður tilfmningaskalanum sem tengdist þessu starfi, vonbrigðunum þegar illa fiskaðist, stolti og sigurtilfmn- ingu þegar aflabikar var hampað og vel gekk og óttanum þegar slæm veður skullu á. Er mér sér- staklega minnisstæð ein nótt sem ég vakti með móður minni þegar Hamar strandaði á Töskuskerinu við innsiglinguna í Rifi. Tvísýnt var alla nóttina hvort tækist að bjarga bát og áhöfn úr þeim háska, sem tókst, sem betur fer giftusamlega. Sjálf fór ég í fyrsta sinn með pabba á sjó þegar ég var 12 ára. Það var ekki í veiðiferð heldur var ferðinni heitið til Isafjarðar að sækja nýja ljósavél í Hamar. Nýr heimur opnaðist fyrir mér að skoða landið frá sjó. Fjöllin á Vestfjörðum í sinni ægifögru mynd fundust mér ævintýraleg. Fleiri ferðir fór ég með pabba á sjó, það eftirminnilegasta úr þeim ferðum er sjóveikin og tókst mér að stífla vatnslása með ælu, föður mínum til lítillar skemmtunar. Kenndi sjómönnum ný vinnubrögð Eftir að ég lauk háskólanámi réðst ég til Skagstrendings á Skagaströnd sem framleiðslu- og gæðastjóri. Fyrirtækið átti frysti- togarann Örvar og var um það bil að fá nýjan mjög stóran og full- kominn frystitogara, Arnar, til viðbótar. Starf mitt fólst meðal annars í því að kenna sjómönnun- um ný vinnubrögð við vinnsluna sem og að stýra framleiðslunni í mismunandi pakkningar eftir sölumöguleikum. Eg predikaði mikið um mikilvægi hreinlætis við vinnsluna og þótti sjómönnunum það mikið um allt þetta hreinlætis og bakteríu tal mitt að þeir gáfu mér fljótlega viðurnefnið Erla Gerla. I sjóferðum mínum með togur- um Skagstrendings kynntist ég lífsmynstri sjómanna sem voru heilan mánuð á sjó og stoppuðu svo nokkra daga í landi. Merki- legt fannst mér að kynnast mis- munandi andrúmslofti sem fylgdi áhöfnunum. Hjá einni ríkti mikil jákvæðni gagnvart öllum verkum, léttleikinn sveif yfir vötnum, menn studdu hver annan og hlut- irnir unnust einfaldlega létt og skemmtilega. Meðan öðrum stjórnendum og öðrum áhöfnum fylgdi mikið þyngri andi. I svona litlu samfélagi sem einn bátur er, Ósfqim sjómönnum og aðstamkndum þárra um farufaílt tiífiamhyju með daginn. Starfsfóíj öjastar edf Nastar ehf. Skútuvogur lb - 104 Reykjavík Sími: 562-9000 - fax: 562-9001 Útflutningur á sjávarafurðum tölvupóstur: nastar@nastar.is N o r t h~A 11 a n t i c S t a

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.