Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Qupperneq 41

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Qupperneq 41
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008 39 þar sem menn deila saman nokkrum rúmmetrum í fjarlægð frá öllum sínum, sést svo skýrt hve mikilvæg góð stjórnun og góð mannleg samskipti eru. Óvissa í ytra umhverfi Síðustu 13 árin hef ég notið þeirra forréttinda að vinna að rekstri sjávarútvegsfyrirtækis þar sem saman er fiskvinnsla, smá- bátaútgerð og togbátur. Fjöl- breytileikinn-. í þeim verkefnum sem ég hef á þeim tíma tekið mér fyrir hendur hefur verið mikill. Rekstur svona fyrirtækis er flók- inn nú á tímum, með marga ytri óvissuþætti, þar sem spila þarf með leikreglum stjórnvalda, allar ákvarðanir þurfa að hljóta náð fjármálastofnanna og tekjurnar sveiflast eftir alþjóðlegu umhverfi gjaldeyrismarkaða. Að ekki sé nú minnst á óvissuna með kvótann og þá skerðingu sem til dæmis núna vofir yfir. Talandi um óvisst ytra umhverfi þá verður mér hugsað til hans Friðþjófs afa míns sem gerði út bæði frá Rifi og Krossavík. A hans tíma voru óvissuþættirnir náttúruöflin og kúnstin var að lesa rétt í þau. Veðrið spilaði höfuðrulluna en einnig var mikilvægt að vera séður að útvega sér góða beitu, þekkja til strauma, góðra fiskimiða og fiskgengdar. Að lokinni sjóferð á opnunr báti og við lélegan aðbún- að þurfti að gera að aflanum og verka hann. Um sölu aflans ríkti líka lengst af mikil óvissa. Þannig má segja að sjávarútvegur hafi alltaf húið við óviss ytri skilyrði bara með ólíkum hætti. Fiskurinn hágæða matvæli Á tímum mikillar umræðu um kvóta, fjármál og arðsemi finnst mér stundum gleymast hvað það er sem við í sjávarútvegi erum raunverulega að vinna að, en það er að framleiða matvæli. Aður fyrr var fiskur álitin tros og þótti ekki fyrsta flokks matur. Nú keppir fiskurinn í ríkara mæli við hágæða matvæli. Nútíma samgöngur gera það að verkum að hægt er að flytja ferskan, unninn fisk frá Rifi til verslana í stórborgum Evrópu á innan við sólarhring. Þetta hefur gert það að verkum að stöðugt nýir markaðir fyrir afurðirnar hafa opnast á undanförnum árum. Ferskur fiskur hefur verið að vinna sér ríkari sess sem lúxusmat- ur. Markaðssetning og sala á fiskafurðum hafa verið með ánægjulegustu verkefnum sem ég hef unnið að á síðastliðnum árum. Sóknarfæri á lúxusmarkaði Eg heimsótti í vetur stærsta kaupanda Sjávariðjunnar í Sviss. Ég fór í nokkrar af verslununum sem selja fiskinn og spjallaði við afgreiðslufólkið. Það sagði að mest væri keypt af besta fiskinum - sem auðvitað var okkar fiskur - fyrir helgar, hátíðar og þegar fólk væri að gera sér dagamun. Margir spyrðu hvort fiskurinn væri veidd- ur á umhverfisvænan hátt og hvort stofninn væri í útrýmingar- hættu. Áherslan á góða umgengni við náttúruna hefur skilað því að í ríkara mæli spáir fólk meira í upp- runa matvælanna og að hverju það sé að stuðla með kaupum á þeim. I þessu samhengi tel ég að sjómenn eigi enn töluverð sóknar- færi á þessum lúxusmarkaði með enn betri meðhöndlun á aflanum um borð. Islenskur fiskur hefur allt, sem þarf til að bera, til stand- ast samkeppni við önnur matvæli á þessum dýrasta matvælamark- aði. Ég er mjög bjartsýn á sölu á íslenskum fiski í framtíðinni. Ég hef þá trú að enn verði hægt að auka verðgildið á hverju kílói sem fæst upp úr sjónum. Valinn maður í hverju rúmi Það hefur verið mér gott vega- nesti í lífinu að hafa alist upp í sjómannsfjölskyldu og í sjávar- þorpi. Störf í sjávarútvegi bæði til sjós og lands hafa verið krefjandi en jafnframt gefandi alla tíð. Þetta eru mikilvæg störf þar sem miklu máli skiptir að valin maður sé í hverju rúmi. Á því hafa framfarir í sjávarútvegi byggst til þessa og mun svo verða um ókomna tíð. Ég vil að lokum þakka sjómanna- dagsráði fyrir þann heiður sem mér er sýndur með því að flytja hátíðarræðu dagsins. Ég óska yklvur öllum gleðilegs sjómannadags og allra heilla í framtíðinni. Sendum sfómönnum okkar bestu kveðjur á sjómannadaginn ! STEINPRENT Sandholt 22, Ólafsvík steinprent @simnet.is S: 436 16)7 • Fax.- 436 1610
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.