Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Side 45

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Side 45
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008 43 hvalveiðar okkar þá munum við hreinlega verða undir í samkeppn- inni við þessar þurftamiklu skepn- ur þegar kemur að nýtingu fiski- stofnana. Það er því brýnt að þeir sem halda um stjórnartaumana hér á landi sýni þá djörfung og þann þrótt sem þarf til að nýting sjávarspendýra verði alvöru at- vinnugrein á nýjan leik og láta ekki stjórnast af þvingunaraðgerð- um þrýstihópa. Allir sannir um- hverfissinnar vilja sjá jafnvægi í lífríkinu, ég er hræddur um að það kvæði við annan tón ef slátr- un kvikfjárs yrði bönnuð og ær og kýr gegnu sjálfala um náttúru Is- lands með tilheyrandi gróðureyð- ingu og vesöld þeirra sjálfra. Gríðarleg verðmætasköpun Hér á Snæfellsnesi eru fiskveiðar jafngamlar landnámi og er þess víða getið í fornsögunum. T.d. er í Laxdælu og Njálssögu lýsingar á verstöðinni Bjarneyjum og sagt frá því að þar hafi oft margt verið um manninn. I Grettissögu, Eyr- byggju og Bjarnar sögu Hítardals- kappa greinir frá skreiðarferðum út á Snæfellsnes. OIl þeldtjum við sagnirnar af sjóróðrum frá Dritvík og Gufuskálum og bera aflrauna- steinarnir á Djúpalónssandi við Dritvík og fiskibyrgin á Gufuskál- um ótvírætt vitni um athafnir manna þar. Þessar sagnir og um- merki staðfesta mikla útgerð á nesinu þegar á 10. og 11. öld, og að fólk hafi sótt þangað til sjó- róðra og skreiðarkaupa víða að af landinu. Það er einnig á stundum sem þessum sem maður lítur til baka og þakkar fyrir þau forréttindi að fá að alast upp við sjávarsíðuna, fylgjast með og taka þátt í þeirri gríðarlegu vermætasköpun sem hér á sér stað og er óumdeilanlega ein helsta forsenda þeirra góðu lífskjara sem við íslendingar búum við og ég minntist á áðan. Vissu- lega kemur fleira til og sem betur fer fjölgar undirstöðum okkar efnahagskerfis en sjálfsagt hefðum við aldrei komist út úr torfkofun- um ef ekki hefði tekist að nýta þá auðlind sem felst í okkar gjöfulu fiskimiðum Dugleysi sjómanna Eg vona að hátíðleiki sjómanna- dagsins haldist um ókomna tíð hér um slóðir og að hann lognist ekki út af eins og víða hefur gerst. Það er ótrúlegt að hugsa til þess að hátíðarhöld á sjómannadegi skuli hafa lagst, að hluta til eða al- veg, af á stöðum eins og Keflavík, Akranesi, Isafirði og nú síðast Ak- ureyri þar sem engin hátíðarhöld verða í ár. Þar kennir forsvarsmað- ur sjómannafélags Eyjafjarðar út- gerðum um og segir þær ekki vilja styðja hátíðarhöldin fjárhagslega. Það finnst mér hins vegar bera vott um dugleysi sjómanna á svæðinu og er viss um að ef vilji væri fyrir hendi hjá sjómönnun- um sjálfum þá þyrfti ekkert að óttast. Hverju sem um er að kenna er Ijóst að ábyrgð þeirra sem standa fyrir skipulagningu hátíðarhaldanna á hverjum stað er mikil og ég er viss unr að söknuð- ur margra Snæfellinga yrði mikill ef þessi hátíðarhöld legðust af í okkar byggðum. Aldrei að sofna á verðinum Ég held að það sé einnig hollt að velta tilgangi sjómannadagsins aðeins fyrir sér, en hann var fyrst haldinn hátíðlegur fyrir tæpum 70 árum síðan til að leggja áherslu á mikilvægi sjómannastéttarinnar og til að minnast þeirra sjómanna sem farist hafa við störf sín. Þó svo að skipsskaðar séu til allrar blessunar ekki jafn hræðilega tíðir nú og fýrr á tímum, þá erum við reglulega minnt á ógnarkrafta náttúruaflanna með tilheyrandi sársauka og missi. Því megum við aldrei sofna á verðinum þegar kemur að öryggismálum sjó- manna og skora ég á sjómenn og allra aðra er málið varðar að hafa það í huga. Jafnframt vil ég nota tækifærið og færa þeim sem starfa í björgunar-sveitunum hér á nes- inu þakkir fyrir þeirra óeigin- gjarna og aðdáunarverða framlag til öryggis og björgunarmála. Ég er hræddur um að ekki væri mikil byggð hér á nesinu ef enginn sækti lífsbjörgina í hafið og því er vel við hæfi að halda vel og mynd- arlega upp á sjómannadaginn til að sýna sjómönnum vorum að við kunnum að meta þeirra störf. Megi þið áfram eiga ánægjulega sjómannadagshelgi, ekki einungis þessa heldur á hverju ári um ókomna framtíð.

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.