Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Page 46
44
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008
Sjómannadagurinn í Stykkishólmi 2007
Sjómannadagurinn hefur settt
svip sinn á bæjarlífið í Stykkis-
hólmi til fjölda ára. Árið 2006 féll
niður dagskrá þennan dag og voru
margir leiðir yfir að hátíðarhöld
voru ekki til staðar á bryggjunni. I
fyrra tóku eldri sjómenn sig sam-
an og skipulögðu dagskrá við
höfnina. Dagurinn hófst með að
lagður var blómsveigur að minn-
ingarreit sjómanna í kirkjugarðin-
um. Að því loknu var gengið til
kirkju. Þar messaði sr Jón Ásgeir
Sigurvinsson og Einar Karlsson
heiðraði Bergsvein Gestsson frá
Hrappsey fyrir áralanga sjósókn.
Eftir hádegi voru skemmtiatriði
við höfnina. Þar lék Lúðrasveit
Stykkishólms á milli atriða. Keppt
var í þessum hefðbundnu grein-
um, beitningu, stakkasundi,
koddaslag, reipitogi og kassatogi.
Þátttaka var góð og mikið fjöl-
menni fylgdist með dagskránni
sem fór fram í góðu veðri.
Að loknum skemmtiatriðum var
gengið um borð í ferjuna Baldur,
þar sem björgunarsveitin Berserkir
var með kaffisölu. Meðan gestir
nutu veitinganna var siglt út á
Breiðasundi í boði Sæferða.
Þeir sem stóðu að dagskránni
urðu varir við þakklæti frá bæjar-
búum sem greinilega vilja að sjó-
mannadeginum verði áfram sómi
sýndur.
Viðar Björnsson
Ljósmyndir:
Gunnlaugur Auðunn Árnason
Fyrir hönd sjómanna heiðraði Einar Karlsson Bergsvein
Gestsson á Sjómannadag.
Þeir Sigurður Páll Jónsson, Valdemar Kúld, Ásmundur Guðmundsson, Eiríkur
Helgason, Baldur Ragnarsson, Páll Guðmundsson og Hermundur Pálsson íylgdust
með dagskránni. Spurningin er hver á nefið fyrir aftan Baldur?
ÓSKUM SJÓMÖNNUM
OG FJÖLSKYLDUM ÞEIRRA
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN
Kristinn Ó Jónsson sér um að Eiríkur Helgason beitari geri allt rétt.
Ásmundur Guðmundsson og ungur áhorfandi fylgjast með.
(^Sendum slómönnum
okkar, bestu kveðim á siómanna'Öayinn
Öfuruno Brimrún
Reykjavik S: 5 250 250 Akureyri S: 5 250 260