Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Page 54

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Page 54
52 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008 um en hann átti svo eftir að stunda sjómennsku í ein 50 ár. Fyrsta skip sem Jói ræður sig á er Rán síðutogarinn Rán frá Hafnarfirði. Rán var smíðuð í Þýskalandi 1915 úr stáli og var 262 brl. Vélin var 400 ha þriggja þjöppu gufuvél eins og mikið var um á þessum árum. Skipstjóri hét Bjarni og var hann kallaður „Rámur“, mikill aflamaður að sögn Jóa en látum hann segja okkur frá þessari ráðn- ingu. „Þetta bar þannig að, að ég var staddur ásamt Jónasi vini mín- um niðri á Hótel Heklu en Ragn- ar var þar oft og fékk sér í glas. Hann hafði þann sið að ráða uppí þrjár til fjórar skipshafnir þegar hann datt í það og í þetta skiptið réð hann m.a. mig og sagði mér að mæta morguninn eftir. Þegar þetta var er ég 17 ára. Eg er voða ánægður og fer með pokann minn um kvöldið og fer strax fram í lúkar og fer í koju og sofna. Svo veit ég ekkert fyrr en um morguninn að við erum komnir út á sjó og ég er kominn út á dekk að Bjarni rekur í mig augun og spyr hver þessi strákur sé eigin- !ega. „Það er einn af þeim sem þú réðir í gær“ segir einhver við hann. Þá var hann búinn að reka alla hina sem mættu um morgun- inn en náði ekki í mig þar sem ég var í koju þegar skipið fór úr höfn,“ segir Jói og brosir. Kyndarastarfið Strax fer Jói að reyna komast í vélina og það byrjar með því að hann fer að skipta við einn kyndarann sem er á Ráninni í þessum túr. Það var mikið álag að vera kyndari en eins og áður sagði var Rán með gufuvél. Kyndastarfið fólst í því að moka kolum inn á opinn eld sem hitaði vatn sem var í kötlunum og það breyttist í gufu við hitann, sem komst upp í 200 stig og knúði Eg sá skip sprengt í lofit upp á þessum ferðum af tundurduflum sem Þjóð- verjar komu fyrir á leið- um skipalestanna og eins voru kafbátarnir hættu- legir. Þeir voru þá komnir með segulmögnuð dufl. vélina. Þetta var mikil erfiðisvinna og menn þoldu ekki lengi við í þessu starfi en Jóa líkaði þetta starf mjög vel. „Kyndarinn sem ég var að skipta við var oft svo þreyttur að hann komst varla upp um stigann þegar vaktin var búin. Eg vann mér þetta svo létt að ég fann nánast ekkert fyrir þessu. Það var mikill hiti í kyndarapláss- inu og oft varð að moka skart þegar skipstjórinn vildi fá meiri ferð á skipið. Þetta var nákvæmn- isvinna því ekki mátti moka of skart því þá fór eldurinn að „dúrra“ eins og sagt var en málið var að halda dampi,“ segir Jói þegar hann lýsir starfinu. Fljótlega fór Jói að leysa vélstjórana af og stjórna vinnunnni því hann hafði gaman af þessu starfi þó oft gengi mikið á t.d. þegar trollið festist í botni en þá var málið að vera fljótur að ná að bakka skipinu en Jói leysti þetta allt saman vel af hendi. Skipalestir Þegar Jói hættir á Rán fer hann á Karlsefni RE 24, sem var smíð- aður í Englandi og var 323 lestir með 700 hestafla gufuvél. Það hlýtur að hafa verið mikil vinna á þessum skipum með gufuvélarnar og þá ekki síst þessi mikli mokstur á kolum. Eftir löndun voru kol sett í stíurnar í lestinni að aftan þar sem næst var vélinni. Svo eftir því sem leið á túrinn var þar sett- ur fiskur. Þegar vel fiskaðist voru skipin vel sigin og því mikil hætta er skipin voru að sigla í ísingu. Jói rifjar það upp þessu til áréttingar þegar togarinn Max Pemberton RE 278, en það var 323 brúttó- lesta skip, fórst þann 11. janúar 1944, á Faxaflóa að talið var, með 29 manna áhöfn en þá var mikil ísing. Getgátur voru þó um að skipið hafi farist af völdum hern- aðar en það var óstaðfest. Þá voru þeir á Rán að berja ís alla heim- leiðina en bæði Max Pemberton og Ránin voru á leið í siglingu til Englands, en þar sem þau voru svipað stór þótti heppilegt að þau sigldu saman út en það tíðkaðist mikið í stríðinu. Siglingar voru mikið stundaðar í stríðinu og þóttu hættulegar. Eins og áður sagði sigldu tvö sldp saman til Englands og þegar Max Pem- berton hafði farist þá var annað skip samferða út. Þetta var til að tryggja frekar öryggi skipverja ef á þau yrði ráðist af þýskum kafbát- um eða af öðrum ástæðum. Þá var líka siglt í skipalestum og þessi tími er minnistæður fyrir Jóa. „ Við fórum í ,,convoy“ og skipum

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.