Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Page 58
56
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008
Sigurður Kristjónsson skipstjóri á Skarðsvík.
jólin var ég á togara og í það sinn
var alveg brjálað veður og ég nærri
farin í sjóinn en náði að halda
mér í trollið, en einn maður fór
fyrir borð. Bróðir þessa manns var
líka á togaranum og það var farið
með hann inn á Patreksfjörð og
hann settur þar í land. Þetta var á
jóladag og svo var maturinn borð-
aður inni á firði en síðan haldið
aftur til veiða. Ekkert slórað á
þessu skipi.
Ráðinn á Skarðsvíkina
Þegar ég hætti á fraktskipunum
fer ég að vinna við pípulagnir og á
þessum tíma fer ég vestur á Hell-
issand og er beðinn af heima-
mönnum að leggja lagnir í bæði
skólastjóraíbúðina og félagsheim-
ilið Röst, sem þá var verið að
byggja. Valdís Magnúsdóttir kona
Skarðsvík SH 205 nr. 1 í röðinni.
Sigurðar Kristjónssonar skipstjóra
og Guðmunda kona mín voru
frænkur og ég hélt því til hjá þeim
hjónurn meðan á þessu stóð. Ég
er eins og oft áður alltaf að hugsa
um sjóinn og spyr því Sigga hvort
„Það vissu það allir að
Ólafur Thors stóð alltaf
við orð sín og það var
klappað mikið fyrir hon-
um af okkur sjómönnun-
um við þessi orð hans,“
ég fái ekki koma með á sjóinn
einn túr, en þetta er árið 1961 og
skipið var á síldveiðum. Elskan
mín góða segir Siggi. Það eru
a.m.k. 100 manns um plássið og
það er bara ekki nokkur leið. Ég
fer svo suður að vinna aftur þegar
verkinu er lokið fyrir vestan. Þeg-
ar ég er nýkominn suður þá
hringir Siggi í mig og spyr hvort
ég hafi verið að meina þetta að
komast á sjóinn. Ég segi þá strax
já og meiningin var að hvíla mig
á píparínu. Ég er svo ráðinn annar
vélstjóri en Sigurður Arnason var
þá fyrsti vélstjóri og var á Skarðs-
víkinni í langan tíma en hann er
nú látinn fyrir mörgum árum.
Blessuð sé minning hans,“ segir
Jói. „Við erunt svo á síldveiðum
fram að áramótum en meiningin
var að fara bara þennan eina túr,
en vera mín á Skarðsvíkinni hjá
Sigga varð í allt 22 ár,“ segir Jói
þegar hann rifjar upp byrjunina á
Skarðsvíkinni. Jói flytur vestur á
Hellissand á þessum árum með
C)<s/iiijf i sfómö/ifuifn (HgJjö/s/uf/cfiim/n'f/vuí
tif/uimifujju /ncd (/(Ujiftn !
Höfum þjónað sjávarútveginum frá árinu 1982
Vélsmiðja Árna Jóns
Rifi, sími: 436 6500 - netfang: velsmidja@arnijon.is