Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Qupperneq 59
Sjomannadagsblað Snæfellsbæjar 2008
57
Skipverjar á Skarðsvík 1964.
Skipshöfnin um borð í m/b Skarðsvík 1963.
fjölskylduna og kaupir þar hús af
Óttari Sveinbjörnssyni, Munaðar-
hól 18, sem þá var í byggingu og
býr þar með fjölskyldunni allan
tímann sem þau eru fyrir vestan.
B/V Elliði ferst
Jói fer svo á vetrarvertíðina á
Skarðsvíkinni þótt Siggi hefði sagt
við hann að vertíðin hjá honum
væri mörgum erfið. „Það verður
bara svo að vera,“ segir Jói við
hann en hún varð Jóa og fleirum
örlagarík þessi vetrarvertíð árið
1962. Laugardaginn 10. febrúar
koma fréttir um það að b/v Elliði
frá Siglufirði sé að sökkva um 15
sml út af Öndverðarnesi . Skip og
bátar frá Snæfellsnesi eru beðin
um að fara til leitar en áhöfnin af
Elliða, alls 31 maður, hafði komist
í björgunarbáta og fleka. Skipið
hafði fengið á sig brotsjó í norðan
8-10 vindstigum og stórsjó. Sig-
urður skipstjóri á Skarðsvíkinni
kallar sína menn út og fara á til
leitar. Seinna urn kvöldið komu
svo Skarðsvíkurmenn að björgun-
arfleka frá Elliða en þar um borð
voru tveir menn látnir og voru
þeir teknir um borð í varðskip.
Stuttu áður, þennan sama dag,
hafði Jói lent í óhappi. „Eg var að
fara út frá Sigga og Valdísi en ég
átti eftir að klára smávegis píparí
niðri í Kaupfélagi. Eg fer út á
tröppurnar en þar er þá smávegis
hálka og renn til og hendist upp í
loftið og lendi þannig að ég brýt
báðar pípur á hægri fótlegg og ég
heyrði þær brotna. Ég man að
Mangi Efjartar, faðir Valdísar, sér
þetta þegar ég er í loftinu en hann
brosti bara og sagði að þetta væri
greinilega ekki mikið. Hann bar
mig þó inn í hús aftur, en ég fann
mikið til og það kom í ljós hvað
hafði gerst. Það var vitlaust veður
þennan dag og sjúkraflugvél
komsr ekki á flugvöllinn á Gufu-
skálum en um nóttina lagast veðr-
ið það mikið að Björn heitinn
Pálsson flugmaður gat lent.
Þú mátt fara með mig til
Ameríku ef þú vilt, en þá
var búið að sprauta mig
svo mikið niður að ég
fann ekkert til svo mér
var alveg sama hvað hann
gerði.
Skarðsvík SH sekkur
Þegar við erum komnir í loftið
segir Björn flugmaður við mig
hvort ekki sé í lagi að taka smá
sveig út á sjóinn til leitar að bát.
Jú jú segi ég. Þú mátt fara með
mig til Ameríku ef þú vilt, en þá
var búið að sprauta mig svo mikið
niður að ég fann ekkert til svo
mér var alveg sama hvað hann
gerði. Um morguninn vakna ég á
Landsspítalanum með gifs upp í
nára og það fyrsta sem ég heyrði í
útvarpinu er að talað er um að
Elliði hafi farist og Skarðsvíkin
líka. Þetta voru slæmar fréttir en
tveir menn fórust af áhöfninni á
Elliða. A leiðinni heim úr leitinni
að skipbrotsmönnunum kom leki
að Skarðsvíkinni sem ekki náðist
að stöðva og báturinn sökk stuttu
síðar. Þeir sem voru á henni er
hún fórst voru eftirtaldir: Sigurð-
ur skipstjóri, Friðjón Jónsson
stýrimaður, Sigurður Árnason vél-
stjóri, Almar Jónsson matsveinn
og hásetarnir Guðmundur Guð-
mundsson og Sigurjón Illugason.
Það gleðilega var að öll áhöfnin
á Skarðsvíkinni komst í gúmmí-
bát og var bjargað um borð í
Stapafell SH 15 en skipstjóri á því
var Guðmundur bróðir Sigga
skipstjóra.“ Þess má geta að
Skarðsvíkin var 87 lesta tréskip og
kom til landsins í ársbyrjun 1961.
Vélskólinn
„Eg fer að hugsa mín mál á
spítalanum og ákvað að nota tím-
ann til að fara i Vélskólann hér í
Reykjavík meðan ég gat ekki unn-
ið vegna brotsins. Ég færi það í tal
við Sigga og hann segir að það sé
allt í lagi. Ég var ágætlega tryggð-
ur svo ég hafði þokkalega fram-
færslu á meðan ég var í skólanum.
Svo kemur ný Skarðsvík í ágúst
þetta sama ár, 1962, en það skip
var smíðað í Noregi og var 176
brl. Ég er svo með Sigga næstu 22
árin og það var sannarlega góður
tími. Ný Skarðsvík kemur árið
1975 og var 347 brl. og mjög