Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Blaðsíða 62
60
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008
Málshættir
Fast þeir sóttu sjóinn
Islendingar stunduðu fisk-
veiðar í meira en þúsund ár á
opnum bátum sem nú þykja
manndrápsfleytur til sjósóknar
á djúpmið. A hverjum báti
voru yfirleitt átta til tíu menn,
jafnvel tólf. Sjósókn var
áhættusöm, og hver áhöfn átti
í raun líf sitt undir formanni
sínum, hversu glöggur hann
var á veður og varfærinn í úfn-
um sjó, hve fljótur hann var að
greina ólögin, hvernig hann
stýrði fleyi sínu í vör. En í
þeim efnum var margs að gæta
eins og segir í Islenzkum þjóð-
háttum:
Ekki niega menn rétta yfir
róðrabáta eður skip sem verið er
að setja fram til fiskveiða heldur
á að gera það aftur eður fram fyrir
skipið. Ekki má heldur kasta fiski
yfir þvert skip þegar af er kastað
heldur á hver að kasta út á sitt
borð eður beint fram úr stafni; allt
þetta veldur aflaleysi og óhöpp-
um. Formaður skal ætíð snúa
skipi sínu sólarsinnis þá frá fjöru
rær; ella veldur það óhöppum og
slysum.
Sjálfsagt þykir varúð af þessu
tagi blandin hindurvitnum, en
hún var ei að síður hluti af þeirri
öryggiskennd sem reynt var að
skapa, til dæmis með sjóferðar-
bæn.
Sjómenn öðrum fremur skyldu
gæta þess að virða helgi sunnu-
daga og annarra hátíðisdaga :
Enginn má kemba sér upp úr
vatni á sunnudag því þá drukknar
hann í sjó.
ALDA
Eftir storminn Iifir aldan
Eftir storminn lifir aldan. Sjór
verður úfinn þegar stormur blæs
um voga, og öldur ber að landi
löngu eftir að storminn lægir. Eins
er um átök rnanna í milli. I hug-
anum eru öldur þótt friður sé
saminn. Menn geta jafnvel borið
ör á sálinni til æviloka þótt sárið
sé gróið fyrir löngu.
AR
Mörgum flotar ein ár til
lands- Bágt er einni ár til lands
að róa - Það er uggvænt hvar
áralaus lendir - Rekur tíðum þó
róið sé öllum árum.
Mörgum flotar ein ár til lands.
Menn voru illa staddir ef engin ár
var um borð. Með einni ár gátu
þeir kannski bjargað sér til lands.
Bágt er hins vegar einni ár til
lands að róa. Og það er uggvænt
hvar áralaus lendir. Þeir sem bár-
ust áralausir að landi hröktust
undan sjó og vindi og urðu að
treysta á heppni og handleiðslu
guðs um að halda lífi. Sá sem er
ekki í þeirri aðstöðu að geta bjarg-
að sér sjálfum má með sönnu kall-
ast áralaus í þessu lífi.
Rekur tíðum þó róið sé öllum
árum. Oft bar svo við, að menn
höfðu ekki afl til að róa á móti
öldum og vindi og rak þá undan
veðri. Þá reyndu menn að halda í
horfinu og komast í var. Svo er
einnig nú. Menn lenda stundum í
þvílíkum mótbyr í lífinu, að þeir
ráða sér ekki, og þegar verst lætur
er andstreymið sjálfskaparvíti.
I öllum þessum málsháttum er
ár tákn fyrir það sem mönnum er
nauðsynlegat til að bjarga sér, af
hvaða tagi sem það er. Þeir hæfa
því við margvísleg tilefni, hver
með sínum hætti.
BÁRA
Sjaldan er ein báran stök-
Þegar ein báran rís er önnur vís
Sjaldan er ein báran stök. Oldur
líða að landi hver af annarri eða
dynja reglubundið á ströndinni ef
brimar. Þegar ein báran rís er
önnur vís sögðu menn. Þessa
málshætti taka menn sér í munn
þegar ógæfan knýr sífellt dyra hjá
sama fólki. Ekki er ofmælt, að
tugir kvenna og barna sáu á bak
föður, bróður, syni eða frænda á
hverri vertíð. Menn reyndu að
sæta lagi þegar þeir sigldu báti að
strönd, en lag er hlé sem verður
milli alda. Það heppnaðist oftast,
en margir druldtnuðu í flæðarmáli
af því að skip þeirra varð fyrir
ólagi, lenti undir broti eða hol-
skeflu.
BÁTUR
Sá verður að laumast með
landi sem lekan hefur bát. Þeir
komast ekki á djúpmið sem róa á
lekum báti. Þeir verða að halda sig
á grunnsævi til þess að eiga stutt í
land. Þannig fer þeim sem hefur
lélegan málstað. Hann laumast
með landi í málflutningi, hættir
sér ekki á djúpmið.
Ofhlaða má hvern bát. For-
menn urðu að kunna skil á hve
mikið mátti hlaða bátinn, annars
var öllum hætta búin. Þannig get-
ur mönnum einnig farið nú, þótt
ekki sæki þeir sjó. Þá ætla þeir sér
eða öðrum of mikið, komast ekki
yfir það sem þeim ber að gera, og
geta jafnvel ofgert heilsu sinni.
BOÐI
Banahætt er á boðanum -
Brotna skal boði á skeri
Banahætt er á boðanum. Boði
er brotsjór eða holskefla og rís
einkum þar sem grynningar eru
eða sker ; orðið getur Iíka merkt
blindsker. Þar þurfti að sigla með
sérstakri gát, því að annars var
mönnum og skipi háski búinn.
Nú getur boði verið tákn fyrir
hvaðeina, sem mönnum stafar
ógn af. Það eru ekki síður boðar á
þurru landi í yfirfærðri merkingu.
Menn eiga að fara varlega hjá
þeim.