Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Blaðsíða 63

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Blaðsíða 63
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008 61 Menn voru í stórhættu ef for- maður kunni ekki góð skil á blindskerjum og hvernig straumar lágu með hliðsjón af brotum. Brotna slcal boði á skeri, en ekki skipi og mönnum. Þannig segja menn þegar þeim tekst að afstýra ógæfu með aðgerðum sínum. BORÐ Ætla skal borð fyrir báru- Betra er að hafa borð fyrir báru - Margur er þar á orði sem hann er ekki á borði Ætla skal borð fyrir báru eða betra er að hafa borð fyrir báru.Bátar eru smíðaðir úr borð- um, sem skarast hvert yfir annað. Það var sjálfsögð varúðarregla að hlaða bát ekki meira en svo að eitt borð væri upp úr sjó. Nóg var hættan samt að bátinn fyllti af öldugangi. Nú geta menn notað þennan málshátt þegar þeir hvetja tilþ ess að gæta hófs eða varúðar. Margur er þar á orði sem hann er ekki á borði. Arar voru lagðar á borðstokk, bundnar eða skorðaðar við keipa. Þeir sem reru á aðra hlið reru saman á borði,sem sagt var. Best þóttí, að þeir væru sem jafnastir að afli. Hins vegar er það alltaf svo, að einhverjir gera meira úr hæfileikum sínum en efni standa til. Þeir eru þar á orði sem þeir eru ekki á borði, við árina, þegar tii kastanna kemur. BORÐFISKUR Guð borgar fyrir borðfiskinn Guð borgar fyrir borðfiskinn. Sjómönnum þykir slæmt að missa fisk af öngli eða úr neti þegar hann er kominn upp að borð- stokk ; það er borðfiskur. En eitt- hvert happ hljóta menn í staðinn, guð launar fyrir fiskinn. Svo geta menn sagt þegar þeir tapa af glaðningi á síðustu stundu, jafnvel fyrir eigin klaufaskap. BYR Ekki sigla allir sama byr - þeir fá byr sem bíða - Njóta skal byrjar þá býðst - Kóngur vill sigla en byr hlýtur að ráða Ekki sigla allir sama byr. Þegar vind hreyfði voru segl dregin í fullt tré (siglutré) á stærri bátum, og gátu þá hásetar hvílst meðan þeir höfðu byr. Menn áttu í ýmsa staði að róa og þess vegna hentaði ekki sami vindur öllum, rétt eins og menn hafa misjafnan byr í lífi sínu nú til dags. Þeir fá byr sem bíða og kann rétt að vera, um síð- ir blæs af réttri átt. Þannig fer þeim sem eru þolinmóðir og grípa tækifærið þegar það gefst ; njóta skal byrjar þá býðst. Það er hins vegar ekki á færi mannna að ráða veðri og vindum : Kóngur viil sigla en byr hlýtur að ráða. Máttarvöldin eru æðri en vilji manna, jafnvel þótt kóngar séu. DJÚP Botnlaust djúp er bágt að kanna Botnlaust djúp er bágt að kanna. Siglingatæki voru fá, en til varúðar, einkum í þoku, höfðu menn vað eða band með steini og létu sökkva. Kenndu þeir grunns voru þeir að nálgast land eða grynningar. Einnig notuðu þeir vað til þess að kanna hversu djúpt var undir bátnum eða hvort kom- ið væri á rétta fiskislóð. En engum ráðum varð komið við þar sem dýpi er mest. Sumir menn eru eins og botnlaust djúp að því leyti, að þeir hleypa engum nærri sér, geta ekki gefið neitt af sjálfum sér til þess að kynnast öðrum. Oyfirstíganleg verkefni mega líka kallast botnlaust djúp, því að menn geta ekki leyst þau af hendi. Samantekið: Marta S. Pétursdóttir Bátur Eftír Örnu Sif Dervic Sjómannadagsblaði Snæfells- bæjar barst eftirfarandi ljóð frá ungum höfundi sem heitir Arna Sif Dervic. Arna Sif er 11 ára gömul og á heima í Ólafsvík og þetta Ijóð orti hún 9 ára gömul. Hún sagði að það hefði allt í einu komið upp í huga hennar og hún hafi sett þetta á blað. Vonandi heldur Arna Sif áfram að yrkja en áhugavert er að birta efni eftir unga höfunda. Sjó- mannadagsblaðið óskar henni alls hins besta í framtíðinni. Bátur á sjónum siglir. Siglir um höfin blá. Og veiðarfærin liggja blaut, rifin og grá. I fjarska er bryggja sem hann stefnir á.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.