Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Side 72

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Side 72
70 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008 Birgir Jónsson (Biggi Höllu) hafði einnig verið á togurum á árum áður og hafði verið háseti á Jóni á netavertíðum. Eg var munstraður sem stýrimaður á Steinunni og Birgir var á Jóni. Olgeir Gíslason (Geiri hvíti) var þá stýrimaður á Jóni og Sigurður Sigurjónsson (Siggi kveikur) var kokkur á Jóni. Víkingur var háseti með okkur á Steinunni. Elcki man ég hverjir voru fleiri í áhöfnum á Jóni og Steinunni. Ekki mikil kunnátta. Ekki fór nú mikið fýrir kunn- áttu okkar Birgis á þessu sviði, því ákveðið var að fara suður til Reykjavíkur og láta kunnugri menn útbúa bátana. Keyptir voru vírar, hlerar og allt sem tilheyrði veiðiskapnum. Fengnir voru sér- fræðingar til að útbúa bátana og vorum við nokkra daga í bænum. Splæstir voru grandarar, bak- stroffur og höfuðlínur. Teknar voru miklar og stórar rúllur af togvír um borð og ákveðið var að merkja vírana fyrir vestan. Þótti meira pláss þar til að draga vírana af rúllunum upp á land og merkja þá. Einnig voru splæst í höfuðlín- urnar merki til að kúlurnar rynnu ekki til á höfuðlínunni. Stærð trollanna var miðuð við höfuð- línulengd. Lengst af var notað 90 feta troll og síðar 120 feta. Humartrollið var með fótreipi en undir fiskitrollunum voru bobbingar á miðjunni og fótreipi á vængjunum. langt upp á Ennisbraut Togvírarnir voru merktir á 25 Halli P. á Hringnum kom í land með 30 tonn einn morguninn þegar við vorum að mæta. faðma millibili. Merkingar voru svo nákvæmar að ef það munaði tommu á rnilli víra var merkið fært. Um 250 faðmar komust fyr- ir á spilinu og þá var búið að stækka tromlurnar sem áður voru aðeins fyrir snurpuvírinn á síld- inni. Þegar búið var að draga vírana á land náðu þeir langt upp á Ennisbraut. Það vakti mikla at- hygli þegar við vorum i bænum og unnum þar á bryggjunni fyrir neðan Kaffivagninn. Þeir sem voru að aðstoða okkur snérust í kringum okkur eins og við værum einhverjir kóngar. T.d komu margir þekktir togarakarlar til okkar, til skrafs og ráðagerða. Menn voru almennt búnir að vera á netaveiðum og síldveiðum og voru þessu ekki mikið kunnugir eins og áður er getið. Vargakjaftur og átta Hin ýmsu nöfn á græjunum vöfðust fyrir mönnum svo sem vargakjaftur, átta, grandarar, bak- stroffur , höfuðlínur, rópur, poka- Guðlaugur W. að stýra inn á tromlurnar með járnstönginni. lína og fleira í þeim dúr. í fyrstu vafðist pokahnúturinn fyrir mönnum, þar sem flesdr kunnu aðeins snurvoðarhnútinn. Mér fannst t.d gaman að því að til að byrja með þá kölluðu allir, sem ekki voru kunnugir trollinu, allt „hanafót“ ef það var einhver lás eða krækja.Vargakjafturinn var t.d hanafótur og eins með bakstroff- una. Ef t.d áttan féll ekki vel í bakstroffuna kallaði einhver og sagði eitthvað á þessa leið: ,,Hana- fóturinn er ekki í lagi á forhleran-

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.