Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Side 81
79
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008
Sjómannadagskaffi hefur frá
fyrstu tíð verið ein aðal fjáröflun
deildarinnar. Fyrsta kaffisamsætið
var í Röst 1966, rjómatertusneið,
kaffi, súkkulaði og mjólk.
Rjómatertan hélt velli í 20 ár,
1986 er samþykkt að biðja allar
félagskonur að baka á sjómanna-
daginn, 1992 er kaffið í skólanum
vegna hátíðarkvöldverðar sjó-
manna, það gafst ekki vel og kaff-
ið var fært aftur í Röst. 2002
gáfu fyrirtæki tertur í fyrsta sinn,
samþykkt að láta sauma svuntur
sama ár. 2004 er samþykkt að
deildin bjóði heiðruðum sjó-
mönnum og mökum þeirra í kaff-
ið. Árið 2007 er heiðrun slysa-
varnakvenna færð á sjómannadag,
heiðursfélagar geta þær konur
orðið sem búa hér, eru orðnar 70
ára og hafa starfað í deildinni í 25
ár eða lengur.
Það er mikilvægt að rekja sögu
deildarinnar til að ítreka mikil-
vægi félagsskaparins. Deildin hef-
ur stundum verið kölluð „kökufé-
lag“ af þeim sem ekki vita betur
en það er eins og sjá má af fram-
anrituðu ekki rétt, Slvd. Helga
Bárðardóttir er slysavarna-, líknar-
og uppbyggingardeild. Verkefnin
breytast í tímans rás en mikilvægi
deildarinnar á liðandi stund breyt-
ist ekki. Konurnar eru alltaf á
bakvakt og fylgjast allar vel með
nánasta umhverfi sínu, hvað varð- létt verk. Við hvetjum konur til
ar slysahættu og slysavarnir. Við að ganga í deildina.
erum boðnar og búnar ef leitað er
til okkar, margar hendur vinna Hulda Skúladóttir
1
1. b. 1986 á umferðarnámskeiði með Sigurlaugu, Ester og Guðlaugi Wiium lögregluþjóni.
Undirbúningur Kúttmagakvölds. Þorbjörg, Lauga, Ester, ?, Eysteinn, Heiða, Skúli, Jensína, Siggi
Kriss, ?, Kiddi og Asi.