Skógræktarritið - 15.10.2020, Page 92
SKÓGRÆKTARRITIÐ 202092
þjóðveginn og minnisvarðann um
Kollabúðafundina sem haldnir voru á
árunum 1849-1868 með vitund og vilja
Jóns Sigurðssonar.
Samfélagið vill einnig gera sitt besta til
að halda á lofti sögu Skóga og tengingunni
við Matthías og leitar nú samstarfs við
sveitarfélagið og aðra aðila sem halda vilja
margbrotinni arfleifð hans á lofti. Tengja
þarf bæjarstæðið betur við minnisvarðann
um Matthías sem stendur niður við
þjóðveginn með göngustíg og upplýsinga-
skiltum.
Heimildir
1 Finnbogi Hermannsson. 2011. Vestfirskar konur í blíðu og stríðu,
2. bók. Vestfirska forlagið. Bls. 89-98.
2 Játvarður Jökull Júlíusson. 1986. Í minningu þjóðskáldsins frá
Skógum. Breiðfirðingur, 44 (1): 51-58.
3 Jochum M. Eggertsson (Skuggi). 1953. Gaddavírsátið og átjándi
sjúkdómurinn : Mikil og sönn lygasaga í smásöguformi: Gerist á
Íslandi. Skógrækt skógarfrænda, baksíða.
4 Matthías Jochumsson. 1959. Sögukaflar af sjálfum mér. Ísafoldar-
prentsmiðja. 373 bls.
5 Paul Hanley. 2019. Brautryðjanda minnst. Skógræktarritið, 2019
(1): 28-32.
Höfundur: HALLDÓR ÞORGEIRSSON
Samfélagið hefur einnig gengið til sam-
starfs við Landgræðsluna undir merkjum
Bændur græða landið sem stutt hefur við
áburðargjöf og sáningu í lítt gróið land.
Framtíðarsýn
Trú- og lífskoðunarfélög koma með nýja
vídd inn í skógrækt þar sem þau nálgast
viðfangsefnið á andlegum forsendum og
hafa tök á að tengja hana við mannrækt á
breiðum grunni.
Nú er unnið að því að leggja mat á þann
árangur sem þegar hefur náðst og marka
áherslur til framtíðar. Leitast verður við
að opna skóginn og auðvelda göngu um
hann svo hann mæti betur aukinni þörf
fyrir kyrrð til íhugunar og snertingar
við náttúruna í hraða nútímans. Leitast
verður við að hlúa að öllum vistgerðum á
svæðinu og hámarka þannig líffræðilegan
fjölbreytileika.
Auðvelda þarf aðgengi að gamla
skóginum og tengja hann betur við
Gerum ræktunarsamninga
við einstaklinga, félagasamtök
og fyrirtæki
Garðplöntustöð
með sérhæfingu
í ræktun skógarplantna
Akureyri, sími 462 2400
solskogar@simnet.is
www.solskogar.is
http://facebook.com/solskogar
t i
i i t li , f l t
f i t i
l
i
í l