Skógræktarritið - 15.10.2020, Síða 97
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2020 97
síðasta vor sem við erum búin að fresta
um ár. Við ætluðum einmitt að kynna
reitina okkar, fjalla um kolefnisbindingu,
fjölbreytileika lífs í skógarjöðrum og
ýmislegt annað.“
Vill efla tengslin við félaga
Sigríður Hrefna leggur áherslu á að stjórn
Skógræktarfélags Akureyrar sé ótrúlega
vel mönnuð og þá sé félagið einnig mjög
heppið með starfsfólk. Meðal þess sem hún
vill leggja áherslu á sem formaður er að
efla tengsl við hinn almenna félagsmann.
„Ég myndi vilja komast í betra samband
við félagsmenn, komast að því hverjir þeir
eru og hvað þeir vilja. Ég er að vinna í því
að búa til póstlista þannig að við getum
að minnsta kosti sent fréttabréf tvisvar
á ári og boðið til einhvers konar samtals
þannig að ef menn eru með hugmyndir
þá erum við í stjórninni aðeins aðgengi-
legri,“ segir Sigríður Hrefna sem einnig
vill efla samskipti félagsins við önnur
skógræktarfélög í grenndinni. „Sigríður
Erla Elefsen skógfræðingur kom hingað
og hélt námskeið og spurði mig hvort
héldu þau umsjón yfir honum. Þegar sá
sem hafði mestan áhuga á skógræktinni fór
svo úr ungmennafélaginu eða fór að gera
eitthvað annað, lognaðist þetta stundum
út af og reiturinn komst aftur í umsjá
landeiganda,“ segir Sigríður sem dreymir
um að gera meira úr þessum upplýsingum
sem söfnuðust á þeim tveimur sumrum sem
hún vann að verkefninu. ,,Draumurinn er
að koma upp síðu og gera þetta aðgengilegt
fleirum. Þá þarf reyndar að taka tillit til
fleiri þátta eins og eignarhalds. Það þyrfti
að komast að því hver er eigandi reitanna
núna og fá leyfi til að auglýsa þá.“ Þeim
sem hafa áhuga á að kynna sér rannsókn
Sigríðar Hrefnu nánar er bent á annað
tölublað Skógræktarritsins árið 2018 auk
þess sem nálgast má B.Sc.-verkefni hennar í
heild sinni á skemman.is.
Sigríður Hrefna hefur setið í stjórn
Skógræktarfélags Eyfirðinga í tvö ár og tók
við formannssætinu í vor, um það leyti sem
nítugasti afmælisdagur félagsins rann upp.
„Við vorum með alls konar plön um að
halda upp á áfangann sem svo lognuðust út
af. Við ætluðum að vera með fundaherferð
Jonas Björk, eiginmaður Sigríðar Hrefnu, við staura í viðargrindverki sem þau hjónin bjuggu til úr efniviði úr fyrstu
grisjun í lerkilundi. Á milli stauranna voru svo lagðar greinar og trjátoppar og þannig myndaðist skjólveggur án mikils
tilkostnaðar. Mynd: Sigríður Hrefna Pálsdóttir