Skógræktarritið - 15.10.2020, Qupperneq 117
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2020 117
minning
Jón Birgir Jónsson
23. apríl 1936 - 22. ágúst 2020
Jón Birgir Jónsson, fv. ráðuneytisstjóri í
samgönguráðuneytinu, er látinn 84 ára að
aldri. Ritstjóri Skógræktarritsins bað mig
að skrifa minningu um hann í ritið og er
mér ljúft að verða við því. Við Jón Birgir
vorum nágrannar í sumarhúsabyggðinni á
Snæfoksstöðum.
Þegar Jón Birgir Jónsson bættist í hóp
okkar landleigjenda á Snæfoksstöðum 1974
var hann 38 ára gamall. Hann hafði starfað
hjá Vegagerð ríkisins í 12 ár og verið settur
í ýmis verkefni, m.a. verið umdæmis-
verkfræðingur á Suðurlandi 1966-´74 og
nýorðinn yfirverkfræðingur framkvæmda-
deildar 1974. Hann hefur því átt erindi
víða og þekkt landið vel og sennilega oft
komið við á Snæfoksstöðum og heillast
af friðsæld og fegurð staðarins, þar sem
sumarhúsalóðirnar eru. Á þessum tíma var
ein lóð laus af þeim sjö, sem afmarkaðar
höfðu verið við Nautavakir. Hann sóttist
eftir henni og fékk með leigusamningi
við eiganda jarðarinnar, Skógræktar-
félag Árnesinga. Það var heillaspor fyrir
félagið að fá Jón Birgi í hópinn, mikinn
áhugamann um skógrækt og sérfræðing
í vegamálum. Snæfoksstaðavegur var á
þessum tíma lélegur malarvegur, sem þurfti
markvissa uppbyggingu. Allir tóku eftir því
sem þangað komu.
Jón Birgir hófst þegar handa á landi sínu
og varði frístundunum á nýja staðnum.
Hann hefur eflaust byrjað á því að lesa í
landið og valið bústaðnum stað. Gengið
um og séð fyrir sér há tré, göngustíga og
grasflatir. Og ekki leið langur tími þar til
hann hafði reist þar glæsilegan bústað,
sem blasti við í hlíðinni upp af vatninu,
dró fánann að húni þegar hann var í
bústaðnum og gróðursetti tré í landið sitt.
Skógrækt er langtíma þolinmæðisverk
og allir, sem stundað hafa trjárækt vita,
að það tekur tvo áratugi að fá skóg, sem
stendur undir nafni. En trén halda áfram
að vaxa og bæta við sig sprota á hverju
ári, og þar kom, að bæði bústaðurinn og
flaggstöngin hurfu sjónum vegfarenda í