Ný menntamál - 01.06.1994, Page 34

Ný menntamál - 01.06.1994, Page 34
NÝ MENNTAMÁL 2. tbl. 12. árg. 1994 Björn Siguröarson Stærðfræði Námsleiðin/Námsleiðinn þessum pistli er ætlunin að hrekja þá kenningu (sem svo oft heyrist) að framhaldsskólastærð- fræðin sé nauðsynleg fyrir alla, sama hvaða nám þeir ætla sér að stunda að loknu stúdentsprófi. Það mun verða gert með tvennum hætti. I fyrsta lagi ætla ég að reyna að brjóta til mergjar tilgang stærð- fræðikennslu og í öðru lagi að athuga á hvaða hátt vísindamönnum hefur tekist að flækja raunvísindin með því að skoða hin dularfullu tengsl tímans og raun- vísindanna. I. Tilgangur stærðfræðikennslu Eitt það fyrsta sem við lærum eru tölur og talning. Þegar skólaseta hefst, lærum við að það er ekki aðeins hægt að telja fingur og tær, heldur einnig epli og app- elsínur. Þegar við höfum náð þokkalegum tökum á því að telja epli og appelsínur sitt í hvoru lagi, lærum við að telja ávexti, þ.e. við lærum samlagningu. Þá loksins getum við sagt til um hvað Vilhallur borðaði marga ávexti samtals, ef hann borðaði 7 banana, 3 appelsínur, 2 epli, 6 loðber og vatnsmelónu. Strax í byrjun stærð- fræðináms gerirveruleikafirring1 vart við sig. Vissulega mundi kennarinn sem legði slíkt dæmi fyrir nemendur sína ekki tilgreina þann tíma sem það tók Vilhall að bryðja ávextina, en börn taka hlutunum yfirleitt eins og þeir koma fyrir og velta því meira fyrir sér hversu mikið Vilhallur borðaði en hversu margt hann borð- aði. Þau sjá strax að ekki er allt með felldu ef Vilhallur hefur troðið svona óskaplega í sig. Víst er þetta gott og blessað en svo vaknar maður upp við það einn morgun- inn að vel þroskuð epli og safaríkar appelsínur eru orðin x og y. Allir þurfa að gera lagt saman og dregið frá og jafnvel margfaldað, en þurfa endilega allir að vita að núllstöðvar 2. stigs margliðu á forminu as2 + bx + c = 0 eru: —b±Vb2—4ac 2 x = --------------? 2a Er ekki nóg að geta gert tékkhefti og skattframtali þokkaleg skil á eigin spýtur? Við fáum ekki nógu mikið val. Öllum er skylt að taka ákveðnar einingar um ákveðið efni í stærðfræði, sama hversu góðir eða slæm- ir þeir eru. Þetta er eins og ef allt í einu væri tekið upp á því að framleiða eingöngu skó númer 36. Búið væri að ákveða að það væri sú skóstærð sem hentaði mannin- um best. Við vitum af reynslunni að ekki nota allir sömu stærð af skóm og sumir nota ekki einu sinni skó. Getum við virkilega neytt fólk í skó, ef við erum rétt staðsett í goggunarröðinni? Svarið er: „Já“, en samt er ekki víst að við séum að breyta rétt. Við verðum að lifa með mistökum okkar og reyna að leiðrétta þau, ekki að fara alltaf sömu slóðina, ef við vitum að hún leiðir okkur í ógöngur. Þess vegna skil ég ekki af hverju yfirvöld menntamála á íslandi hafa ekki valið ein- hverja aðra leið. Þau hafa valið skóstærðina en ættu að hafa séð fyrir löngu að hún hentar ekki öllum, skórinn er of lítill. Þessi litli skór, stærðfræðin eins og hún er kennd nú, er einhver stærsta hindrun sem verður á vegi hins almenna nemanda. Samt er ekkert gert til að ryðja henni úr vegi. Að læra að telja er hverjum manni nauðsyn, en er hverjum manni nauðsyn að læra að til séu mínustölur? Þegar mínustölur koma til sögunnar fallast mörgum hendur því ekkert sem við þekkjum í okkar áþreifan- lega veruleika verður nokkrum tíma mínus. Ennþá hef ég engan heyrt tala um að hann eigi mínus þetta eða mínus hitt þegar hann glatar þessu eða hinu. Samræm- ast mínustölur hugmyndum okkar um fjölda og stærð? I gegnum tíðina hefur stærðfræðin verið réttlætt með því að segja að hún sé nauðsynleg til að þjálfa nemend- ur í rökhugsun og í því að takast á við margvísleg vandamál. Væri þá ekki betra að kenna rökfræði í stað stærðfræði? Þær reikningsaðferðir sem notaðar eru í rökfræði eru það einfaldar og þægilegar að allir ættu að geta lært þær og vissulega kennir rökfræði nemendum rökræna hugsun og vandamálaglímu. Þetta lítur 34

x

Ný menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný menntamál
https://timarit.is/publication/2011

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.