Ný menntamál - 01.06.1994, Qupperneq 14

Ný menntamál - 01.06.1994, Qupperneq 14
NÝ MENNTAMÁL 2. tbl. 12. árg. 1994 c Ólöf Helga Þór Sorgin í skólanum Eru kennarar ístakk búnir að styðja nemanda ísorg? Viljaforeldrar aðstoð kennara ísorgarúrvinnslu barns- ins þeirra? Hvernig komum við fram við syrgjendur? Forðumst við syrgjanda af því við vitum ékki hvað við eigum að segja? Ekki eru til einhlít svör við ofanrituð- um spurningum. Við verðum að svarafyrir okkur sjálf, viðurkenna óöryggi okkar og vanmátt gagnvart dauð- anum sjálfum. Þarfir foreldra og geta kennara sem sálusorgara, er einstaklingsbundin. Eina ráðið til að ofangreindir aðilar eigi möguleika á að nálgast svar er að hver og einn líti í eigin barm, sýni gagnkvœma virð- ingu og geti talað saman af einlœgni og einurð. ið upphaf þessarar aldar ólst æskan upp í nánum tengslum við náttúruna. Hringrás lífsins með upphaf og endi: fæðingu og dauða var reynsluheimur hennar. En nú við lok aldarinnar hafa uppeldisskilyrðin gjörbreyst. Flest börn alast upp í borgum og bæjum, nálægðin við náttúruna er lítil. Börnin fara í dagsferð í heimsókn í sveitina til að sjá algengustu húsdýrin. Á sjúkrahúsum fæðumst við og deyjum. Dauði þess sem er barni kært, eins og heimaalningsins eða hundsins er því ekki leng- ur algeng lífsreynsla. Meðalaldur íslendinga er hár og blessunarlega er tíðni ungbarnadauða ein sú lægsta í heiminum. Dauði ástvinar er nú lífsreynsla fárra barna. „Við íslendingar berum harm okkar í hljóði“ og „berum ekki tilfínningar okkar á torg“ Þessi orð hafa verið höfð að leiðarljósi meðal þjóðar- innar það sem af er öldinni. En til forna syrgði kappinn Egill og gafst nærri upp fyrir sonarmissinum, beindi þó sorg sinni í farveg skáldsins með því að yrkja Sonator- rek. Sem betur fer eru margir íslendingar í þeim sporum að missa ekki fyrsta ættingja sinn fyrr en þeir eru komnir vel á þrítugsaldur og jafnvel síðar. Tilfinninga- viðbrögð fullorðinna við endanleika dauðans verður oft að örvæntingarfullri lífsreynslu því börnin eru vernduð fyrir sársauka og örvæntingu. Dauðinn er því tabú sem við forðumst að hugsa um fyrr en hann skell- ur á með öllum sínum þunga. Meðferðaraðilar, geðlæknar, sálfræðingar ogfélags- ráðgjafar hafa orðið þess áskynja í viðtalsmeðferðum sínum síðastliðin fimmtíu ár að áföll á borð við dauða náins ástvinar getur orsakað tilfinningalega erfiðleika hjá einstaklingi mörgum árum eftir að áfallið sjálft átti sér stað. Því hafa fræðimenn rannsakað líkamleg, and- leg og tilfinningaleg viðbrögð syrgjenda og sett fram kenningar um sorgarferlið. í upphafi rannsóknanna var talið að manneskjan væri um sex mánuði að vinna úr sorgarreynslu sinni. Nú er talið eðlilegt að mann- eskjan sé um tvö ár að ná aftur tilfinningalegri ró. Háskólar víða erlendis bjóða nemendum sínum kennslu í því „hvernig er að deyja“ og „hvað er dauði“ með það að markmiði að búa nútíma einstakling í 14

x

Ný menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný menntamál
https://timarit.is/publication/2011

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.