Ný menntamál - 01.06.1994, Qupperneq 10
C )
getur riðið baggamuninn um hvort skóli eða kennari
ráði við að hafa seinfæran eða fatlaðan nemanda eða
hvort honum er vísað í sérskóla eða sérdeild. Úti á
landi varðar þetta framtíð fjölskyldna og jafnvel
byggðarlaga þar eð vísun fatlaðs nemanda frá sínum
heimaskóla getur haft í för með sér flutning fjölskyld-
unnar á mölina til frambúðar. Stuðningur þarf að
koma frá utanaðkomandi aðilum en skólinn þarf einn-
ig að byggja hann inn í sitt starf.
Skólar fá ráðgjöf fyrst og fremst frá fræðsluskrifstof-
um, einkum sálfræðideildum og kennslufræðideildum
þeirra. Ráðgjöfin felur í sér mat á námshæfni og sam-
skiptum nemenda með sérþarfir og tillögur um
kennslutilhögun og annað skólastarf. Auk þess sam-
hæfa fræðsluskrifstofur ráðgjafarþjónustu margra rík-
isstofnana svo sem frá Greiningar- og ráðgjafarstöð
ríkisins, ráðgefandi sérskólum, Unglingaheimili ríkis-
ins, Barna- og unglingageðdeild og heilsugæslustöðv-
um. Þessa þjónustu þyrfti að veita sem mest í skólunum
sjálfum til þess að minnka fyrirhöfn og tilkostnað
heimilanna. Fræðsluskrifstofa er því í hlutverki móð-
urstöðvar fyrir skóla umdæmisins og mikilvægt að við
flutning grunnskóla til sveitarfélaga verði skrifstofurn-
ar fluttar með eða að annar sambærilegur aðili taki við
verkefnum þeirra.
Með stuðningi innan skólans er átt við kerfi sem
skólinn sjálfur setur upp til þess að styðja og styrkja
kennara í því að koma til móts við þarfir allra nem-
enda. Skólastjórinn ætti að leiða slíkt starf. Hópur eins
og nemendaverndarráð gæti verið honum til aðstoðar
og auk þess haft það hlutverk að kanna hvort náms-
efni, námsgögn og kennsluaðferðir henti öllum nem-
endum. En það sem skiptir meginmáli varðandi það
hvernig almennum grunnskóla gengur að hvetja sein-
færa nemendur til átaka sem leiða til árangurs eru
sameiginleg viðhorf og áhugasamt samstarf kennar-
anna.14 Sumar starfsaðferðir kenndar við altæka gæða-
stjórnun gætu gagnast skólum í þessum tilgangi.15
Vinna með foreldrum
Þótt á því séu margar góðar undantekningar eru
kennarar almennt óöruggir um hvernig koma megi á
og viðhalda nánu samstarfi við foreldra, ekki síst for-
eldra barna sem gengur illa eða eru erfið í skóla. Þetta
er ekki séríslenskt vandamál og að mörgu leyti skiljan-
legt þar eð óljós markalína um ábyrgð á velferð og
þróun barnsins ýtir undir óöryggi beggja aðila. Skólinn
hefur auk þess það hlutverk að leggja mat á nemendur
og eru foreldrar skiljanlega viðkvæmir fyrir því. Mis-
munandi skilningur og væntingar sem mótast af ólíkri
stöðu og tengslum við barnið skapa oft ginnungagap á
milli þessara tveggja mikilvægustu aðila í námi þess.16
Skólinn vill fá að sinna tilætluðu hlutverki sínu án of
mikilla afskipta þeirra sem ekki bera þar beina ábyrgð
10
og flestir foreldrar, sem hafa yfirleitt nóg annað að
gera, telja að honum sé vel treystandi til þess. Margir
foreldrar barna með sérþarfir voru sjálfir ekki ánægðir
í skóla eða upplifðu jafnvel að skólinn væri þeim and-
snúinn. Þeir eru ekki líklegir til þess að sækjast eftir
samstarfi þótt um allt annan skóla sé að ræða en þann
sem þeir sjálfir sóttu. En þótt ástæðurnar séu í flestum
tilvikum ekki svo áþreifanlegar eru margir foreldrar og
kennarar ekki alveg rólegir í návist hvers annars. Sam-
starf við foreldra getur einnig verið feikilega tímafrekt
fyrir kennara, ef vel á að vera, og kjarasamningar gera
ekki ráð fyrir því.
Engu að síður er nú nokkur vakning meðal foreldra
um hluverk sitt í skólamálum.17 Þegar samstarf skóla
og heimila eflist þurfa foreldrar að forðast að stilla sér
upp sem varðhundum eða stjórnarandstöðu gagnvart
skólum. Því er sú þróun ekki alfarið jákvæð að for-
eldra- og kennarafélög, þar sem fulltrúar kennara og
skólastjórnar sitja í félagsstjórn ásamt með foreldrum,
eru í auknum mæli að breytast í hreinræktuð foreldra-
félög. Aðhald sem foreldrar geta veitt og eiga að veita
skólum í starfi þeirra þarf að spretta upp úr þekkingu á
og virðingu fyrir starfi skólanna. Slíkt mótast best í
náinni samvinnu við þá.
Eitt af því fáa sem slá má föstu í menntamálum, ef
dæma má af fyrirliggjandi rannsóknum, er að nám