Ný menntamál - 01.06.1994, Side 25

Ný menntamál - 01.06.1994, Side 25
c eins og nafnið bendir til að skapa samfellu í uppeldis- og kennslu- fræðilegu tilboði 0-13 ára barna. Mikil áhersla er lögð á aldursblönd- un og er skólahúsið skipulagt og byggt með það fyrir augum. „Midj- an“ er gott dæmi um þetta. Sú áhersla sem lögð er á aldursblönd- un byggir á rannsóknum sem hafa sýnt fram á að aldursblöndun er börnum eðlislæg. Wilhelm D. Hartrup, sem vinnur við háskólann í Minnesota í Bandaríkjunum, hef- ur kannað og skoðað samskipti barna í aldursblönduðum hópum. Hartrup vísar m.a. til rannsóknar sem Barker og Wright stóðu fyrir og komust þar að þeirri niðurstöðu að einungis 35% af daglegum sam- skiptum barna eru við jafnaldra sína. Sú niðurstaða hefur verið virt að vettugi í uppeldis- og kennslu- fræðilegri starfsemi. Hér eru leik- skólarnir lengra á veg komnir en grunnskólarnir og má nefna til- raunir með systkinahópa því til sanninda og fámenna skóla þar sem aldursblöndun hefur verið nauð- synleg, en er ef til vill ekki alltaf metin að verðleikum. Kennsla við hæfi, færnimiðað nám, ábyrgð á eigin námi og aukin samvinna kennara; allt eru þetta hugtök sem okkur skólafólki eru hugleikin. Það má einu gilda hvort flett er upp í fagbókum eða tímarit- um um kennslu- og skólamál, ís- lenskri eða norskri aðalnámskrá, alls staðar getur að líta ofangreind hugtök. Þau blasa við okkur sem eins konar áskorun um að taka mark á niðurstöðum kennslufræði- legra rannsókna síðari ára. Ef litið er á íslenska og norska grunnskóla blasir við okkur skóla- hald sem einkennist af að nemend- um er skipt niður í kennslueiningar (bekki) eftir aldri (hér eru fámenn- ir samkennsluskólar undantekn- ing). Kennarar reyna að kenna öll- um nemendahópnum það sama, með sama hraða. Þetta er miður heppilegt af mörgum ástæðum. I fyrsta lagi verður aldursdreifingin Ingar nemandi í 6. bekk við vinnu sína. að vera 12 mánuðir. í öðru lagi hef- ur fjöldinn allur af rannsóknum sýnt fram á að það má að jafnaði búast við allt að fjögurra ára þroskabili í sama aldursflokki. Rökin fyrir því að skipta nemend- um í kennslueiningar eftir aldri falla því um sjálf sig. Rannsóknir sem hafa verið gerðar víða um heim sýna að möguleikar á að kennsla við hæfi takist eru mestir þar sem kennslan fer fram í aldursblönduð- um hópum. Þessi kennslutilhögun hefur reynst einkar heppileg fyrir þá nemendur sem ekki tilheyra „meðaltalinu" þ.e. seinfæra nem- endur annars vegar og afburða nemendur hins vegar. Einnig hefur komið í ljós að kennsla í aldurs- blönduðum hópum leiðir til meira samræmis á milli námsgreina, sam- vinnu kennara, samvinnu heimila og skóla og síðast en ekki síst sam- vinnu nemenda. Fjölbreytnin í þroska og aldri skapar andrúmsloft fyrir margvís- legt nám. Börnin fá í ríkum mæli tækifæri til að læra hvert af öðru. Þetta á ekki síst við um málþroska. Fullorðnir láta sér lynda að setning- ar litla barnsins séu ófullkomnar og illskiljanlegar og geta sér oft til um hvað barnið er að reyna að segja. Börnin hins vegar gera meiri kröfur hvert til annars. Eldri börnin hafa auk þess meiri orðaforða og þau sem yngri eru fá góðar fyrirmyndir. Hvað eykur gæði skólahaldsins? Nú á tímum umræðu um gæða- stjórnun á flestum sviðum þjóðlífs- ins er þetta spurning sem við skóla- fólk getum ekki látið hjá líða að leita svara við. Ég vil hér geta rann- sóknar sem að mínu mati er mjög áhugaverð. Árið 1984 birtu Levin, Glass og Meister niðurstöður rann- sókna sinna varðandi aukin gæði Það er erfitt að halda aftur af brosinu þegar Georg kennaranemi er kominn með kinnalit og í kjól. 25

x

Ný menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný menntamál
https://timarit.is/publication/2011

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.