Ný menntamál - 01.06.1994, Side 31

Ný menntamál - 01.06.1994, Side 31
við sameiginleg verkefni, listræn eða ekki. Ein röksemd sem hefur stundum verið notuð (og tengist art therapy) er að myndmennt rói börn og geri þau hæfari til annars náms. Þessi röksemd kann að vera fullgild fyrir vissa einstaklinga, en hún réttlætir engan veginn myndmennt fyrir all- an fjöldann. Myndmennt er ekki deyfilyf sem á að þjóna öðrum námsgreinum fremur en efnafræði eða söngur. Rök sem lúta að mikilvægi list- sköpunar einstaklingsins duga því ekki ein og sér til að réttlæta að myndmennt sé kennd í skólum. Listsköpun má finna svo fjölbreytta og mismunandi farvegi utan skól- ans að það er varla réttlætanlegt að nota skattpeninga til að ýta undir hana nema fleira komi til. Og vissu- lega ber myndmennt að fjalla um fleira en listræna sköpun. Löngu áður en börn læra að tala, hafa þau byrjað að nema myndir. Orð verða síðan tákn um hluti, at- hafnir og fólk; þau verða lyklar að myndum. Við upplifum öll lífið fyrst á myndrænan hátt og ímyndin stendur okkur alltaf nær en orðið. Þetta vill oft gleymast í heimi þar sem áherslan er í sívaxandi mæli sett á stöðlun, að allt sé mælanlegt, skipulegt og skilgreinanlegt. Það er svo margt í heiminum, sem verður aldrei staðlað, skipulagt eða skil- greint þannig að vit sé í; mikið af því sem við komumst í tæri við munum við ætíð upplifa á mynd- rænan hátt. Það er á þessu sviði, sem helst er hægt að finna fullgilda réttlætingu fyrir myndmenntakennslu í skól- um: Það þarf skipulegt, fræðilegt nám í gegnum allan skólann, frá hinum fyrstu þroskastigum til hinna efstu, tii að veita nemendum tækifæri til að efla sjónskyn sitt, til að þeir kynnist þeim tækjum sem leggja grunn að og þjálfa hina list- rænu upplifun einstaklingsins. Myndmennt getur þannig ráðið miklu um hvort nemandinn verður hlutlaus, áhugalaus og skoðanalaus móttökustöð fyrir áhrif umhverfis- ins eða hvort hann öðlast heil- steypta, sjálfstæða og gagnrýna sýn á myndmál þess samfélags, sem hann lifir í. Sú fræðsla sem myndmennt get- ur veitt um listræna upplifun er þannig nauðsynlegt tæki í lífinu fyrir sjálfstæðan og fullgildan þjóð- féiagsþegn, alveg á sama hátt og kunnáttaí lestri, skrift og reikningi, og grunnskilningur á eðli vísinda og uppbyggingu mannlegs samfélags. Og á grundvelli þeirra röksemda ætti skattgreiðandinn að sam- þykkja án hiks að það sé full ástæða til að myndmennt skipi öruggan og fastan sess í öllu grunnnámi sem skattpeningar hans eru notaðir til að fjármagna. Hvað er gert í myndmennt í skólum þessi árin? Myndmenntakennslu í skólum má í aðalatriðum skipta í tvö meg- insvið: Það sem lýtur að listrænni sköpun nemenda og þar með hin- um verklega þætti iistanna annars vegar og það sem lýtur að listrænni upplifun og hinum huplæga þætti listanna hins vegar. Aherslurnar milli þessara þátta í kennslunni í grunnskólum landsins eru hins veg- ar í hróplegu ójafnvægi; sá skóli er tæpast til hér þar sem hlutfallslega jöfnum tíma er varið í að fjalla um listræna sköpun og listræna upplif- un ogjDetta vita myndmenntakenn- arar. I kennslunni almennt er raun- in sú að hin verklega list hefur allan forgang og hið huglæga fær aðeinst stolin augnablik. Kennarar á þessu sviði (líkt og fleirum) leggja áherslu á að börnin geri hlutina fremur en að þeir skilji, meti og njóti þeirra. - Skólinn vill fremur reyna að búa til fleiri Kjarvala og Picassoa en að gera nemendum kleift að kunna að 31

x

Ný menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný menntamál
https://timarit.is/publication/2011

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.