Golf á Íslandi - 01.12.2010, Blaðsíða 14
14 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
G O L F fréttir
Golfklúbbur Reykjavíkur náði frábærum árangri þeg-
ar sveit klúbbsins náði öðru sæti á Evrópumóti golf-
klúbba sem fram fór á Estela golfvellinum í Portúgal
í október. Sú hefð hefur skapast að sú sveit sem ber
sigur úr býtum í Sveitakeppni GSÍ keppi fyrir Íslands
hönd í þessu móti og því lék GR að þessu sinni. Arnar
Snær Hákonarson, Haraldur Franklín Magnús og
Þórður Rafn Gissurarson léku fyrir hönd GR og Íslands
í mótinu og var Brynjar Eldon Geirsson liðsstjóri.
Sveitin hóf keppni af miklum krafti og var í efsta sæti
í mótinu eftir fyrstu tvo keppnisdagana og var Harald-
ur Franklín Magnús að leika feikilega gott golf og var
sjóðheitur á pútternum. Töluvert hvassviðri gerði kylf-
ingum afar erfitt fyrir og að sögn íslensku kylfinganna
stóð portúgalska hvassviðrið alveg í því íslenska sem
kylfingar hér á landi þekkja svo vel. GR sveitin leiddi
með einu höggi fyrir lokahringinn og ætluðu íslensku
strákarnir sér að koma heim með Evróputitilinn.
Lítið gekk á lokahringnum í miklu hvassviðri og
misstu GR-ingar efsta sætið í hendurnar á franska
golfklúbbnum Ormesson sem vann að lokum mótið
með nokkrum yfirburðum. Það hafði líklega ekki
hvarflað að íslensku strákunum fyrir mótið að þeir
yrðu ósáttir við annað sætið en sú varð raunin. Brynj-
ar liðsstjóri var þó fljótur að finna jákvæðu hliðarnar
eftir mótið enda er þetta besti árangur íslensks golf-
klúbbs í mótinu frá upphafi.
„Við vorum sjálfum okkur verstir á lokahringnum og
vorum búnir að missa tækifærið á sigri eftir fyrri níu
holurnar. Við ætluðum okkur að koma heim með doll-
una og vorum í forystu eftir fyrstu tvo keppnisdag-
ana. Þetta er hins vegar besti árangur Íslands í keppn-
inni frá upphafi og það er árangur sem við getum
glaðst yfir,“ sagði Brynjar Eldon að móti loknu.
Eins og fyrr segir vann Ormesson klúbburinn með
Þjóðfundarfyrirkomulag var notað á fundi sem GSÍ efndi til um afreksstefnu
golfhreyfingarinnar. Fjölmargar tillögur urðu til og verða vegvísir fyrir afreks-
nefnd sambandsins í framtíðinni.
Fundargestir voru íþróttastjórar klúbbanna, fulltrúar PGA á Íslandi, formenn
unglinga- og afreksnefnda kúbbanna, stjórn, afreksnefnd og starfsmenn GSÍ.
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson lektor í Háskóla Íslands stjórnaði fundinum og
skipti fundarmönnum í þrjá sjö manna hópa. Í hverjum hóp var lóðs og fór
hann fyrir hópnum og kynnti niðurstöður hans á hverjum tíma. Markmiðið var
að sækja þekkingu og áherslur fundarmanna þegar kemur að afreksmálum
golfhreyfingarinnar og skrá fyrir lok fundarins.
Spurt var: „Hvað getum við gert til að koma kylfingum okkar í fremstu röð?“
Yfir sjötíu svör eða hugmyndir komu fram og síðan var unnið úr þeim. Mikil og
lífleg umræða varð svo þegar fundarmenn kynntu sín svör og tillögur.
Fundarmenn skrifuðu
hugmyndir á gula miða
og ræddu þær síðan.
GR náði besta árangri frá upp-
hafi í Evrópumóti golfklúbba
Þjóðfundarfyrirkomulag notað á afreksstefnufundi
nokkrum yfirburðum og lék hringina þrjá á samtals
einu höggi yfir pari. GR urðu í öðru sæti á 16 höggum
yfir pari og þýski klúbburinn St. Leon-Rot í þriðja sæti
á 18 höggum yfir pari. Í einstaklingskeppninni var það
Jerome Lando Casanova sem lék best allra á samtals
fjórum höggum undir pari við afar erfiðar aðstæður.
Það er hreinlega ekki annað en hægt að vera góður í
golfi þegar þú berð eftirnafnið Casanova.
Lokastaða efstu golfklúbba:
1. sæti: Ormesson - Frakkland +1
2. sæti: GR - Ísland +16
3. sæti: St. Leon-Rot - Þýskaland +18
4. sæti: Oporto - Portúgal +20
5. sæti: Son Servera - Spánn +21
Sigursveit GR í sveitakeppninni.