Golf á Íslandi - 01.12.2010, Blaðsíða 94
94 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
til laugardags, en svo hættir mér til að flýta mér
á sunnudögum. Sveiflan verður hraðari og púttin
einnig.
Margir halda kannski að þessi töp á stórmótunum sé
það versta sem þú hefur upplifað um ævina. Þú hefur
hins vegar gert mistök í fortíðinni og jafnvel nýlega,
(ölvunarakstur 2009) hvaða lærdóm hefurðu dregið
af þessum mistökum?
Hvað það er mikilvægt að hafa fólk í kringum sig sem
vill þér allt hið besta.
Hverjir höfðu samband eftir PGA og U.S Open atvik-
in? Einhverjir sem þú bjóst ekki við að heyra frá?
Þú myndir ekki trúa því hvað það voru margir sem
höfðu samband. Phil (Mickelson) skildi eftir hug-
hreystandi skilaboð og sömuleiðis Butch (Harmon).
Michael Jordan lét einnig heyra frá sér og við héngum
saman í Vegas vikuna eftir PGA.
Hvað sagði Michael við þig?
Hann sýndi bara stuðning, sagði að ég hefði spilað
vel og þetta væri bara skítt. Hann sagði að allir væru
á sama máli, það var ómögulegt að sjá að þetta væri
glompa.
Og hvað gerðuð þið Michael Jordan í Vegas?
Við spiluðum smá golf. Hann er mikill keppnismaður,
mjög mikill keppnismaður.
Hver vann?
Ég vann hann. Hann var ekki að spila sem best. Ég er
bara feginn að hafa ekki hitt á hann daginn áður, þá
spilaði hann á 69.
Þú hefur sjálfur leikið körfubolta í gegnum tíðina, þið
M.J hafðið ekkert tekið smá einn á einn?
Nei því miður, en við fórum út að borða og héngum
saman tvö kvöld.
Nú veit ég að þú getur troðið körfuboltanum, hver er
þín besta troðsla?
Já ég get enn troðið þrátt fyrir að spila ekki mikið
þessa dagana. Ef ég kæmist aðeins í gírinn gæti ég
kannski troðið aftur fyrir mig eða tekið hann við-
stöðulaust á lofti (alley-oop). Annars er draumurinn
sá að ég hlaupi upp völlinn, M.J sendir háa sendingu
og ég tek boltann í loftinu og hamra honum.
Hversu góður ertu miðað við hina í mótaröðinni sem
spila körfubolta?
Það er erfitt að segja. Ég veit að Gary Woodland er
góður, hann spilaði körfu í háskóla. Hann er ansi
seigur í drævunum líka. Það væru ekki margir sem
að myndu slá okkur við í tveir á tvo í körfu og í
drævkeppni.
Er það satt að þú hafir getað gómað körfubolta í 7.
bekk?
Ég hef getað gert það alveg síðan ég man eftir mér.
Þú eyðir miklum tíma í Las Vegas, hvað er það sem
þér líkar við borgina?
Mér finnst bara gott að vera þar, gott veður, mikið
stuð og bara gaman.
Hvernig er dæmigerður dagur fyrir þig í Vegas?
Vinn aðeins með Butch. Spila kannski smá golf, fer út
að borða og svo smá fjárhættuspil um kvöldið.
Hvað spilarðu oftast?
21 og teningaspil.
Heyrist mikið í þér við borðið í teningaspilinu?
Kemur fyrir, ef ég er í góðu skapi.
Þú byrjaðir að vinna með Butch í apríl. Hvað er það
fyrsta sem hann hafði að segja um sveifluna þína?
Það fyrsta sem hann sagði var að hann ætlaði ekki að
breyta miklu í sveiflunni minni þó svo kylfuhausinn
sé svolítið lokaður efst í baksveiflunni. Hann sagðist
getað lagað þetta en það myndi hins vegar þýða að
ég gæti ekki leikið golf lengur, þar sem ég hafði vanið
mig á aðra aðferð allt mitt líf.
Hverju hefur hann breytt í leik þínum?
Að klára af 140 metrunum og nær, ég fæ fullt af þann-
ig höggum út af högglengd minni. Við ákváðum að
stytta sveifluna aðeins, sérstaklega í styttri járnunum.
Þetta er allt að smella saman. Ég er líka að læra að fá
boltann til að fara frá vinstri til hægri. Ég hef alltaf lát-
ið hann svífa frá hægri til vinstri. Það er mikilvægt að
geta komið sér að þessum holum sem liggja aftarlega
hægra megin á sunnudögum. Ég náði því nokkrum
sinnum á PGA mótinu.
Hverjir eru nánustu vinir þínir á mótaröðinni?
Phil (Mickelson) og ég erum orðnir ansi nánir. Annars
er ég mikið með Steve Marino, D.J Trahan og Charlie
Warren. Annars eru flestir þarna mjög fínir og við
náum vel saman.
Þú og Phil hafið spilað mikið af æfingarhringjum
saman á þessu ári sem gerir Butch auðvelt fyrir þar
sem hann þjálfar ykkur báða.
Ég tel Phil vera einn af þeim bestu í heiminum. Við
spilum mikið saman á þriðjudögum. Ég man eftir
að hafa spilaði með Phil eftir að ég komst fyrst inn á
mótaröðina. Við höfum náð vel saman á þessu ári.
Er ekkert verið að leggja undir?
Nokkra dollara, já.
Nokkur hundruð eða nokkur þúsund?
Hver veit? (hlær).
Hvor er högglengri, þú eða Phil?
Ég. (hlær).
Nokkuð jafnir kannski?
Það munar ekki miklu, hann er ansi seigur. En ég tek
hann.
Hvað telurðu þig hafa lært af Phil?
Bara að sjá hvernig hann er í mannlegum samskipt-
um, það er lærdómsríkt. Ég reyni að gefa eiginhandar-
áritanir og koma vel fram við aðdáendur og tel mig
standa mig ágætlega bara. Ég veit að þetta er mikil-
vægur partur af þessu öllu saman.
Afi þinn, Art Whisnant var nokkuð góður körfuknatt-
leiksmaður er það ekki?
Jú, hann er í frægðarhöllinni í South Carolina háskól-
anum og er enn í fullu fjöri. Hann hefur verið stór
hluti af mínu lífi alveg síðan ég man eftir mér. Hann
hefur hjálpað mér mikið fjárhagslega. Flestir í fjöl-
skyldunni eru nokkuð góðir íþróttamenn.
Pabbi þinn líka?
Í framhaldsskóla spilaði hann hafnarbolta, körfubolta,
knattspyrnu og amerískan fótbolta. Hann byrjaði svo
í golfi eftir framhaldskóla. Hann var meðalkylfingur
en þó „skratsari“ (núll í forgjöf) og spilaði um tíma á
minni mótaröðum.
Einhver önnur íþrótt sem að heillaði þig áður en þú
valdir golfið?
Eiginlega ekki, ég var að vísu nokkuð góður í hafn-
arbolta. Ég var kastari og var nokkuð fastur. Oftast
vissi ég þó ekkert hvert boltinn var að fara. Ég spilaði
eiginlega ekkert í framhaldsskóla því ég var kominn á
fullt í golfið.
Hversu góður varstu þegar þú varst yngri?
Ég man þegar ég var 14 eða 15 ára spilaði ég á 64
höggum þrjá daga í röð á Golden Hills vellinum í Lex-
ington.
Hversu langt varstu að dræva á þeim tíma?
Ég var að „dræva“ svona 275 metra þegar að ég var 16.
Kemur það oft fyrir að áhugamenn missi sveifluna
sína við það eitt að reyna að halda í við högglengd
þína þegar þeir leika gegn þér?
Margir gera það svona fyrstu tvær holurnar, þá róa
ég menn niður og fæ þá til að mýkja sveifluna. Það
kemur þó fyrir að maður lendir á móti kylfingi sem
er nokkuð högglangur og hann tollir varla í skónum í
sveiflunni.
Hvað gerirðu þér til skemmtunar þegar þú ert ekki
að spila golf?
Ég elska að vera í vatni, helst á sjóskíðum eða
sjóbretti. Þá hugsa ég ekkert um golf, ég velti því bara
fyrir mér hvort að það sé nóg af klaka í kæliboxinu til
að endast mér daginn.
G O L F Dustin Johnson
„Já ég get enn troðið þrátt
fyrir að spila ekki mikið
þessa dagana. Ef ég kæm-
ist aðeins í gírinn gæti ég
kannski troðið aftur fyrir
mig eða tekið hann við-
stöðulaust á lofti“