Golf á Íslandi - 01.12.2010, Blaðsíða 88

Golf á Íslandi - 01.12.2010, Blaðsíða 88
88 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is Staðreyndir Aldur: 14 ára Nafn: Sara Margrét Hinriksdóttir Klúbbur: Keilir Forgjöf: 15,2 Golfpokinn: MD kylfur, Odyssey pútter, Gary Player 56 og 52 gráður Golfskór: Nike og Ecco Golfhanski: Callaway Golfbolti: Callaway og Titelest Uppáhalds matur: Purusteik Uppáhalds drykkur: Fanta Lemon Uppáhalds kylfa? 3-tré Ég hlusta á: Fm957 Besta skor: 83 högg á Hvaleyrarvelli Kaymer eða McIlroy? Mcllroy Besta vefsíðan: Facebook Besta blaðið: Golf á Íslandi Besta bókin: Ef þú bara vissir Besta bíómyndin: Engin sérstök bara allt nema hryllingsmyndir! Hvað óttastu mest? Eðlur UNGIR OG EFNILEGIR Páll Theodórsson Hver er ástæðan fyrir að þú hófst að leika golf? Ástæðan fyrir því að ég byrjaði í golfi er helst sú að foreldrar mínir byggðu hús rétt við Hlíðavöll í Mos- fellsbæ og ég fór þangað ásamt vini mínum þegar við vorum 11 ára. Við fórum ekkert endilega til að spila golf heldur frekar til að forvitnast og leika okkur. Ingi Rúnar Gíslason, golfkennari, bauð okkur strax að vera með í krakkamóti. Mér gekk vel og fann að þetta var íþrótt sem ég hafði gaman að. Hvað er það sem heillar þig við golf? Það sem heillar mig er að maður er alltaf að keppa við sjálfan sig og ekki að treysta á aðra. Svo er sama hve oft maður leikur sömu brautirnar það er alltaf eitthvað nýtt sem tekur á móti manni. Hverjir eru þínir framtíðardraumar í golfinu? Taka þátt í mótaröð GSÍ, stunda nám af kappi og klára stúdentspróf. Ég hef ekki tekið frekari ákvarðanir að sinni. Hvernig var árangur í samræmi við væntingar í sumar í golfinu? Árangurinn í sumar var ekki nægjanlega góður að mínu mati því ég var að fá leiðindasprengjur í góðum hringj- um. Ég hefði líka mátt æfa meira en ég gerði, sem hefði klárlega sparað nokkur högg. Skapið getur verið kostur og galli Kylfingurinn Páll Theodórsson úr Golfklúbbnum Kili er ungur og efnilegur kylfingur sem á framtíðina fyrir sér. Hann er 18 ára gamall og varð í fjórða sæti á stigalista Arion-banka unglingamótaraðarinnar í piltaflokki. Páll var nokkrum sinnum í toppbaráttunni í piltaflokki í sumar þó honum hafi ekki tekist að lenda í verðlaunasæti. Besti árangur hans var þegar hann lenti í 4. sæti í lokamóti sumarsins á Hvaleyrarvelli. Páll stundar nám við Framhaldsskólann á Laugum og æfir því lítið golf yfir vetrarmánuðina. Hann ætlar sér hins vegar að bæta úr því í vor. Staðreyndir Aldur: 18 ára Nafn: Páll Theodórsson Klúbbur: Golfklúbburinn Kjölur (GKJ) Forgjöf: 3,8 Golfpokinn: Titleist D1 driver, Titleist 906F2(15°), Callaway Forged 4-PW járn, Callaway X – forged 52°,56° og 60°, Ping Anser pútter. Golfskór: Adidas Tour 360 LTD Golfhanski: Srixon Golfbolti: ProV1 Uppáhalds matur: Kryddaður kjúklingur sem mamma gerir Uppáhalds drykkur: Pepsi Max án efa Uppáhalds kylfa? 56° Ég hlusta á: Allt með góðum texta eða góðan takti Besta skor: 70 högg í Vestmanneyjum Kaymer eða McIlroy? McIlroy án efa Besta vefsíðan: Facebook Besta blaðið: Golf á Íslandi Besta bókin: Allar náttúrufræðibækur Besta bíómyndin: The Shawshank Redemption Hvað óttastu mest? Að það verði hætt að framleiða Pepsi Max Hver er helsti galli þinn í þínum leik og af hverju telur þú að svo sé? Minn helsti galli er örugglega lítil þolinmæði og að ég tek of mikið af áhættum sem eru að kosta nokkur högg. Það er hins vegar frábært þegar þau högg heppnast og er auðvitað hluti af töfrunum við þessa íþrótt. Ég stefni að því að leika af meiri skynsemi á næstu árum og reyna að fækka höggunum. Hver er þinn helst kostur í golfinu og af hverju? Þó skapið sé galli þá finnst mér það vera kostur líka og ég held að það eigi eftir að vera meiri kostur en galli í framtíðinni. Ég get slegið langt sem er auðvitað kostur þegar á þarf að halda og er skynsamlegt. Hvert er eftirminnilegasta atvikið sem þú manst eftir? Líklega er það þegar ég fékk örn á 13. holunni á Hval- eyrinni í unglingamóti í júní árið 2007. Ég hafði leikið ágætlega og var á pari eftir níu holur en var kominn tvo yfir par fyrir 13 holuna. Upphafhöggið mitt var rétt um 120 metra frá holu og ég sló vel hægra megin við pinn- ann, boltinn lenti framarlega á flötinni, rúllaði lengi áður en hann lak í holuna. Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í? Þegar ég sló mig út úr Íslandsmóti fullorðinna í Vest- mannaeyjum 2008 á 13. holu og komst ekki í gegnum niðurskurðinn. Þá setti ég tvo bolta út af vellinum og inn í íbúðarhverfið. Hverjir eru uppáhalds kylfingarnir og af hverju? Það er náttúrulega Tigerinn, hann er svo hrikalega góður. Næstur er Ian Poulter en hann er í miklu uppáhaldi hjá mér því að hann er svo svalur. Í hvaða skóla ertu og hvernig gengur í náminu? Ég er í Framhaldsskólanum á Laugum sem er frábær skóli og námið gengur vel. Hvað æfir þú mikið í hverri viku? Aðstæður til golfæfinga hérna fyrir norðan eru ekki miklar, en ég mun æfa í jólaleyfinu. Ég mun æfa á fullu næsta vor og þá reyni ég að æfa tvær til fjórar klukkustundir á dag. Hver er uppáhalds golfvöllurinn og hvers vegna? Það er klárlega Vestmanneyjavöllur. Það er bara eitt- hvað svo magnað við hann og þar er að finna flottar holur, léttar holur, erfiðar og allt þar á milli. Það er svo einstakt að vera í Eyjum. Hvaða þrjár golfholur á Íslandi eru í sérstöku uppáhaldi hjá þér? Áttunda og sextánda holan í Vestmannaeyjum eru í uppáhaldi. Einnig er alltaf gaman að leika fjórtándu hol- una á Hlíðavelli. Hvaða fjórir kylfingar skipa draumaráshópinn að þér meðtöldum? Ég, Tiger Woods, Ian Poulter og Rory McIlroy. Hver eru helstu áhugamál fyrir utan golf? Bara að vera unglingur í heimavist í frábærum skóla í Þingeyjarsýslu, með frábærum krökkum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Golf á Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.