Golf á Íslandi - 01.12.2010, Blaðsíða 84
84 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
Dunvegans er sennilega þekktasta golfkrá í heimi
en hún er staðsett eitt hundrað metra frá 18. flöt-
inni á Gamla vellinum, Old course, í St. Andrews í
Skotlandi. „Hingað koma kylfingarnir,“ segir Sheena
Willoughby sem rekur staðinn með Jack manni sín-
um, í viðtali við Golf á Íslandi.
Þau Jack & Sheena Willoughby komu til St. Andrews
fyrir sautján árum síðan frá Aberdeen. Hún kemur frá
Carnoustie en þar er eins og flestir vita annar frægur
„Open“ völlur. Jack er hins vegar Bandaríkjamaður og
kemur frá Texas. Ekki slæm blanda þegar hjón reka
saman veitingastað því kúnnarnir eru kylfingar úr
öllum heiminum sem koma til Mekka golfsins, St.
Andrews, „Home of Golf“.
„Allir sem koma til St. Andrews vilja leika Gamla völl-
inn og því erum við í leiðinni,“ sagði Sheena með
bros á vör. Hún segir að viðskiptavinir Dunvegans
séu aðallega kylfingar úr öllum heiminum en í St.
Andrews eru einnig margir stúdentar sem sækja
nám í St. Andrews háskólanum og þar var um tíma
Bretaprinsinn William í námi. Námsfólkið fer á aðra
staði þó svo einhverjir kíki á þennan vinsæla golfpöbb
og veitingastað.
Dunvegans er ekki bara krá. Gisting er í vel útbún-
um fjórum herbergjum sem geta hýst 8 manns. Á
staðnum er einnig vinsæll veitingastaður sem ber
nafnið The Claret Jug sem er jú nafnið á hinum aldna
verðlaunagrip Opna breska mótsins. Þar er úrval
rétta í boði en vinsælast á seðlinum eru grillaðar
nautasteikur með tilheyrandi meðlæti. Inni á kránni
er einnig hægt að fá mat af sama matseðli. Menn
velja sér bara hvaða stemmningu þeir vilja því hún
Þekktasta golfkrá í heimi
G O L F í útlöndum
-Old Course er heimavöllur þeira Sheenu og Jack
eigenda Dunvegans golfpöbbsins í St. Andrews:
er rólegri inni á veitingastaðnum. Vinsælustu drykk-
irnir eru bjór, Tennent’s eða Carlsberg. Svo er Whiskey
mjög vinsælt en yfir 50 tegundir eru í boði á Dunveg-
ans.
Dunvegans kráin er opin í ellefu mánuði á ári. Mest er
að gera frá miðjum mars út október. Þau hjón loka í
desember og fara þá oftast til Texas.
Það er sérstök stemming á Dunvegans. Ekki aðeins er
góður möguleiki að hitta á fræga kylfinga eða kylfu-
sveina þeirra þegar mót eru heldur hafa einnig margir
frægir einstaklingar komið á staðinn. Á staðnum má
sjá alla veggi þakta ljósmyndum af mörgum af bestu
kylfingum heims sem hafa komið og margar þeirra
af þeim Jack og Shenu með kylfingum eins og Tiger
Woods, Lorena Ochoa, Mark O’Meara, John Daly og
síðan með þekktum einstaklingum, eins og George
Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og leikaranum
Hugh Grant en hann keppir árlega á Dunhill mótinu,
og mörgum fleirum.
Einn af þekktum fastagestum Dunvegans var þekkt-
asti kylfusveinninn í St. Andrews, Tip Anderson en
hann var m.a. „kaddý“ Arnolds Palmer nokkrum
sinnum frá árinu 1960 og hann var á pokanum hjá
Palmer þegar hann vann Opna breska 1961 og 1962
en 1960 urðu þeir félagar í 2. sæti á Old Course. Tip
var fastagestur á Dunvegans og átti sitt fasta pláss á
kránni frægu. Þar mátti sjá þessi skilaboð á veggnum:
„Þessi sæti eru fyrir Tip og vini hans“. Tip þekkti hverja
þúfu á Gamla vellinum og þótti frábær kylfusveinn.
Á Dunvegans eru teikningar af öllum sigurvegurum á
Opna breska gerðar af listamanninum skoska David
Joy en hann er heimamaður. Joy dressar sig upp við
mörg tækifæri að skoskum sið í skotapilsi og tilheyr-
andi og hermir eftir Old Tom Morris „fyrsta“ sem vann
Opna breska fjórum sinnum á árunum 1861 til 1867.
Þau Sheena og Jack leika golf nokkrum sinnum í viku
og reyna að ná hring á Old Course sem oftast. Hún
segist ekki vita hvað hún hafi oft leikið völlinn en
hann sé óneitanlega heimavöllur þeirra. „Það er alltaf
sérstök tilfinning að standa á 1. teig á Old Course,
alveg sama hversu oft maður leikur hann,“ sagði
Sheena.
Sheena á Dunvegans.
Sheena á mynd með Lorenu Ochoa.
Kaldur á 19. holu.
Kyle MacLachian,leikari
hefur kíkt á Dunvegans.