Golf á Íslandi - 01.12.2010, Qupperneq 30
30 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
Lokahóf Golfsambands Íslands fór fram um miðjan
september í húsakynnum Ýmis í Skógarhlíðinni
að viðstöddu fjölmenni. Þar voru veitt verðlaun til
þeirra kylfinga sem sköruðu framúr á mótaröðum
GSÍ í ár. Einnig voru valdir efnilegustu kylfingarnir og
Júlíusarbikarinn afhentur.
Hlynur Geir Hjartarson úr Keili hlaut Júlíusarbik-
arinn í ár en hann er veittur þeim kylfingi sem er
með lægsta stigaskor á Eimskipsmótaröðinni á þessu
keppnistímabili. Hlynur var að verðlaununum kom-
inn enda lék hann mjög gott og stöðugt golf í sumar
og varð að lokum stigameistari. Hann var með 71,73
högg að meðaltali á hring í sumar. Þetta er annað
árið í röð sem kylfingur úr Keili hlýtur þessi eftirsóttu
verðlaun en á síðasta ári var það Björgvin Sigurbergs-
son sem hreppti Júlíusarbikarinn.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Rúnar Arnórsson,
bæði úr Keili, voru valin efnilegustu kylfingarnir árið
2010 og voru vel að nafnbótinni komin. Guðrún Brá
varð Íslandsmeistari í höggleik í telpnaflokki ásamt
því að verða stigameistari. Rúnar varð Íslandsmeist-
ari í holukeppni í piltaflokki, varð annar í Íslandsmóti
unglinga í höggleik og varð stigameistari í piltaflokki.
Auk þess að verðlauna alla kylfinga sem urðu í efstu
þremur sætunum í sínum stigaflokkum var tilkynnt
að GR hefði verið stigahæsti klúbburinn í karla- og
kvennaflokki á Eimskipsmótaröðinni. Hjá ungling-
unum var Keilir stigahæsti golfklúbburinn.
Stigalisti Eimskipsmótaraðarinnar:
Karlaflokkur:
1. Hlynur Geir Hjartarson GK 6131,88
2. Sigmundur Einar Másson GKG 5634,38
3. Kristján Þór Einarsson GKJ 4905,00
Kvennaflokkur:
1. Valdís Þóra Jónsdóttir GL 7282.50
2. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR 5885.00
3. Signý Arnórsdóttir GK 4382.50
Stigalistar í öllum flokkum eru á næstu síðu.
Júlíusarbikarinn:
Hlynur Geir Hjartarson, GK 71,31 meðaltalsskor
KPMG bikarinn:
Meistaraflokkur: Úrvalslið Landsbyggðarinnar
Eldri kylfingar: Úrvalslið Höfuðborgarinnar
Efnilegustu kylfingarnir 2010:
Rúnar Arnórsson, GK og Guðrún Brá Björgvinsdótt-
ir, GK
GOLFÁRIÐ 2010 stigakeppni mótaraðanna
Stigameistarar 2010 - Áskorendamótaröð Arion
banka:
Strákar 14 ára og yngri:
1. Henning Darri Þórðarson GK 6513,75
2. Óðinn Þór Ríkharðsson GKG 6120,00
3. Arnór Tumi Finnsson GB 3435,00
Stelpur 14 ára og yngri:
1. Harpa Líf Bjarkadóttir GK 6345,00
2. Eva Karen Björnsdóttir GR 5790,00
3. Gerður Hrönn Ragnarsdóttir GR 5557,50
Drengir 15-16 ára:
1. Þorkell Már Einarsson GB 4777,50
2. Eggert Rafn Sighvatsson NK 3000,00
3. Atli Marcher Pálsson GSG 2730,00
Hlynur fékk Júlíusarbikarinn
Úrvalslið Landsbyggðarinnar vann KPMG bikarinn. Úrvalslið Höfuðborgarinnar vann KPMG bikarinn hjá eldri kylfingum.
Þrír efstu í piltaflokki með Kristínu Magnúsdóttur og Jóni Ásgeiri
Eyjólfssyni frá GSÍ.
Rúnar Arnórsson og
Guðrún Brá Björgvins-
dóttir, efnilegust.
Karen Guðnadóttir og
Rúnar stigameistarar í
elsta flokki unglinga.
Hlynur með Júlí-
usarbikarinn og Ber-
steinn Hjörleifsson,
formaður GK.