Golf á Íslandi - 01.12.2010, Síða 46
46 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
Kylfingurinn högglangi, Örvar Samúelsson frá Akur-
eyri, átti líklega endasprett ársins í íslensku golfi.
Hann fékk sex fugla í röð á þriðja hring í Íslands-
mótinu á Kiðjabergsvelli og jafnaði vallarmetið er
hann lék á 68 höggum. Hann gat þó minna leikið á
Eimskipsmótaröðinni í ár en hann hafði ætlað sér og
voru það meiðsli í baki sem voru að hrjá kylfinginn.
Hann varð einnig klúbbmeistari GA og er nokkuð
ánægður með sumarið.
Hver voru helstu markmiðin þín í sumar og náðir þú
þeim?
Helstu markmiðin voru að vinna meistaramótið, að
enda í topp-10 í Íslandsmótinu og ná þátttökurétti í
Íslandsmótið í holukeppni sem ég gerði en þurfti að
hætta við keppni sökum meiðsla. Ég stefndi að því
að ná topp-10 á stigalistanum en sökum stöðugra
meiðsla í baki gat ég hvorki æft né keppt jafn mikið
og ég vildi. Ég er engu að síður ánægður með árang-
urinn í sumar.
Hver var hápunktur sumarsins og hver voru mestu
vonbrigðin?
Hápunkturinn var klárlega þriðji hringurinn í Íslands-
mótinu í Kiðjabergi þegar ég fékk sex fugla í röð og
jafnaði vallarmetið á 68 höggum. Mestu vonbrigðin
voru sú að bakið á mér var með leiðindi allt sumarið.
Í hvaða þætti golfsins hefur þú mest bætt þig í á þessu
tímabili?
Ætli það sé ekki svona sitt lítið af hvoru. Ég er orðinn
aðeins öruggari í öllu, beinni á drævernum, pitchin
nokkuð góð og geri minna af stórum mistökum.
Pútterinn er ennþá langt frá því að vera nógu góður
og eitthvað sem ég þarf að vinna í.
GOLFÁRIÐ 2010 spurt og svarað Örvar Samúelsson GA
Drævin styttri en beinni
Hvaða kylfingur kom að þínu mati mest á óvart í
sumar?
Þótt það sé skrýtið en þá var það Birgir Leifur. Ég bjóst
ekki við honum svona sterkum eftir að hafa glímt við
svona erfið meiðsli.
Hver finnst þér skemmtilegasti golffélaginn á
mótaröðinni og af hverju?
Spilaði þrjá hringi á Fitness-sportmótinu með Rafni
Stefáni Rafnssyni og skemmti mér mjög vel. Alltaf
hægt að spjalla við hann og grínast um léleg högg og
svo framvegis.
Hvaða golfholur eru í uppáhaldi á mótaröðinni?
15. holan á Kiðjabergsvelli.
Voru drævin betri eða verri? Er lengdin alltaf að aukast?
Drævin voru mun betri. Beinni en aðeins styttri sem
er mjög jákvætt. Maður á að sjálfsögðu til að verða
svolítið pirraður og taka nokkrar bombur en ég reyni
að hafa það í lágmarki. Lengdin er voðalega mismun-
andi fer bara eiginlega eftir því í hvernig skapi maður
er.
Hvað var það skrýtnasta sem þú upplifðir eða varst
vitni að á golfvellinum í sumar?
Það skrýtnasta sem ég upplifði var þegar ég kom inn
í klúbbhús eftir þriðja hringinn í Íslandsmótinu og sá
sex fugla í röð á skorkortinu mínu. Félagi minn hafði
skrifað á vegginn hjá mér á Facebook eftir fyrsta hring
og skotið á mig hvers vegna ég væri svona lélegur og
ekki fengið fimm fugla í röð.
Örvar á 30 sekúndum:
Klúbbur: Golfklúbbur Akureyrar
Aldur: 19 ára
Forgjöf: 0,3
Leyndur hæfileiki: Ætli það séu ekki
tölvuleikirnir
Besti hringur: 67 högg - Arnarholtsvöll-
ur, 1. ágúst 2009
Hola í höggi: Ekki orðinn það heppinn
ennþá
Uppáhalds kylfingur: Tiger Woods
Draumaráshópurinn: Tiger Woods,
John Daly og Bubba Watson
Uppáhalds kylfa: 58 gráðu fleygjárnið
Arnar Snær Hákonarson úr GR
hóf keppnistímabilið á Eimskips-
mótaröðinni af miklum krafti og
varð í þriðja sæti í Vestmanna-
eyjum og í öðru sæti á Urriðavelli.
Hann setti sér það markmið að
vinna mót á mótaröðinni í sum-
ar en það gekk ekki eftir. Arnar
Snær var hins vegar í sigursveit
GR í sveitakeppninni og lenti svo
í öðru sæti með GR í Evrópumóti
golfklúbba sem fram fór í haust í
Portúgal. Hann telur sig helst þurfa
að bæta líkamlegu hliðina fyrir
næsta keppnistímabil.
Hver voru helstu markmiðin þín í
sumar og náðir þú þeim?
Var með mörg markmið fyrir sum-
arið, þar á meðal að vinna stigamót
sem ég náði ekki. Einu markmið-
in sem ég náði var að komast í
undanúrslit í holukeppninni og að
vinna sveitakeppnina með GR.
Hver var hápunktur sumarsins og
hver voru mestu vonbrigðin?
Hápunktur sumarsins var klárlega
sveitakeppnin. Mestu vonbrigðin
voru Íslandsmótið á Kiðjabergi,
einnig mótin á Leirdalsvelli og á
Hellu.
Í hvaða þætti golfsins hefur þú mest
bætt þig í á þessu tímabili?
Ég hef að mínu mati staðnað í flest
öllu nema kannski púttum. Hef
verið að fara aftur hvað varðar slátt
og tækni.
Hvaða kylfingur kom að þínu mati
mest á óvart í sumar?
Það kom mér eiginlega eng-
inn á óvart í sumar. Guðmundur
Ágúst kæmi til greina en hann er
einfaldlega orðinn það góður að
hann var að leika samkvæmt getu.
Það var einnig gaman að sjá Harald
Franklín Magnús sigra á Hellu.
Hvað þarft þú helst að bæta fyrir
næsta keppnistímabil?
Ég þarf helst að bæta mig lík-
amlega. Einnig þarf ég að bæta
stutta spilið, andlega þáttinn, tækni
og löngu höggin.
Hvað var það skrýtnasta sem þú
upplifðir eða varðst vitni að á golf-
vellinum í sumar?
Spila í Eyjum i öskunni og að sjá
hvað sumir refsa völlunum á
mótaröðinni. Alveg hrikalegt að
horfa á þetta.
Arnar á 30 sekúndum:Klúbbur: GR
Aldur: 20
Forgjöf: 0
Leyndur hæfileiki: Rosalegur í borðtennisBesti hringur: 67 (-4)Hola í höggi: 1
Uppáhalds kylfingur: Payne Stewart.Draumaráshópurinn: Cassius Marcellus Clay, Michael Jordan, Ben HoganUppáhalds kylfa: 8-járn
Arnar Snær Hákonarson GR
Sveitakeppnin hápunktur sumarsins