Golf á Íslandi - 01.12.2010, Síða 62
62 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
P G A golfkennsla
Sjónvarpsstöðin ÍNN sýndi í sumar þættina Golf fyrir
alla með þeim Brynjari Geirssyni og Ólafi Má Sigurðs-
syni. Þættirnir nutu mikilla vinsælda á stöðinni en
þar kenndu Brynjar og Ólafur Már, golfkennarar hjá
Pro Golf, áhorfendum réttu handtökin við golfíþrótt-
ina.
Pro Golf og ÍNN munu nú í framhaldi af þessum
þáttum gefa út DVD disk í byrjun desember sem ber
nafnið Golf fyrir alla. Um er að ræða tvöfaldan DVD
disk með 8 klukkustunda efni þar sem farið er yfir
alla helstu þætti golfleiksins. Á fyrri disknum er farið
yfir grunnatriðin í púttum, vippum og sveiflunni auk
þess sem farið er yfir upphitun, glompuhögg og mis-
munandi högg í kringum flatir. Á seinni disknum eru
spilaðar 18 holur með mismunandi kylfingum og farið
yfir leikskipulag, kylfuval og högg úr mismunandi
aðstæðum. Diskurinn er ætlaður byrjendum sem og
lengra komnum.
„Okkur Brynjari hafði alltaf langað til að framleiða
golfkennsluþætti og þegar okkur bauðst samstarf
með ÍNN fóru hjólin að snúast. Markmiðið hjá okkur
var að vinna að útbreiðslu golfíþróttarinnar og kenna
sem flestum golf á einfaldan en markvissan hátt. Síð-
astliðið vor og sumar tókum við upp fjöldann allan af
þáttum með skemmtilegu fólki og þættirnir voru svo
sýndir á ÍNN,“ segir Ólafur Már Sigurðsson.
Mikið áhorf á þættina
Það má segja að Golf fyrir alla hafi slegið í gegn á ÍNN
enda fengu þættirnir mikið áhorf.
„Áhorfið á þættina kom skemmtilega á óvart og
einnig hversu mikið er horft almennt á sjónvarpsstöð-
ina ÍNN. Síðustu vikuna í október á þessu ári horfðu
t.d. yfir 32% eitthvað á útsendingar stöðvarinnar
samkvæmt niðurstöðum Capacent. Það var líka
ánægjulegt að við hjá Pro Golf höfum fengið mikið
af símtölum frá fólki sem hafði aldrei áður snert golf-
kylfu en hafði verulega gaman af þessum þáttum og
vildi panta hjá okkur kennslu og byrja að æfa golf.
8 klukkustundir af kennsluefni
DVD diskurinn er tvöfaldur og inniheldur 8
klukkustundir af kennsluefni. Fyrri diskurinn er
almenn kennsla og seinni diskurinn spilkennsla. Hvað
varð til þess að þið ákváðuð að setja þetta á DVD?
„Þegar líða tók á sumarið fórum við að fá töluvert af
fyrirspurnum um hvernig fólk gæti nálgast þættina
og það kveikti í okkur að framleiða DVD disk með öllu
efninu sem við áttum. Við klipptum þetta saman og
settum á tvo diska. Fyrri diskurinn er almenn kennsla
þar sem farið er yfir helstu þætti leiksins en á seinni
disknum spilum við allar 18 holurnar í Borgarnesi með
mismunandi kylfingum. Á þessum 18 holum lenti fólk
í alls kyns vandræðum og við kenndum högg úr mis-
munandi aðstæðum ásamt því að fara í gegnum leik-
skipulag og kylfuval,“ segir Ólafur Már Sigurðsson.
Pro Golf og ÍNN gefa
út golfkennsludisk
©
20
10
O
tic
on
In
c.
A
ll
Ri
gh
ts
R
es
er
ve
d.
Pantaðu tíma í
heyrnarmælingu í síma
568 6880
og prófaðu Agil
G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w . h e y r n a r t æ k n i . i s
Komdu út úr skelinni...
...og njóttu þess að heyra með Agil heyrnartækjum
Áttu í erfiðleikum með að heyra í fjölmenni eða klið? Finnst þér aðrir tala lágt eða óskýrt?
Tekur þú sjaldnar þátt í hópumræðum en áður? Allt þetta getur verið merki þess að heyrn
þín sé farin að versna.
Agil eru byltingarkennd ný heyrnartæki sem hjálpa þér að heyra betur með minni áreynslu.
Tölvuörflagan í Agil er helmingi öflugri en áður hefur þekkst en tækin eru samt um helmingi
minni en hefðbundin heyrnartæki og búa þar að auki yfir þráðlausri tækni.
Ekki draga þig í hlé vegna heyrnarskerðingar. Komdu út úr skelinni og njóttu þess að heyra
eins vel og mögulegt er með Agil heyrnartækjum.
„Að geta heyrt tónlistina sína aftur eins
og hún á að hljóma er lítið kraftaverk
- ég heyri aftur söng fuglanna“
Bubbi Morthens