Golf á Íslandi - 01.05.2015, Síða 6
Gleðilegt sumar, ágætu kylfingar.
Um leið og daginn fer að lengja má heyra
kylfinga spjalla um væntanlegar eða yfir
standandi sveiflubreytingar, sem yfirleitt
eiga að leiða til verulegrar forgjafarlækkunar.
Markmið sumarsins eru sett og spenningur
er í loftinu. Fyrir mér er þetta hinn eini sanni
vorboði. Ég veit ekki með ykkur, en mikið
rosalega er ég orðinn spenntur fyrir því að
hefja leik. Eflaust eruð þið sama sinnis eða
jafnvel löngu byrjuð að spila.
Vorið hefur verið kalt um allt land, svo kalt að heyra
hefur mátt íslenska kylfinga lýsa áhyggjum sínum yfir
því að sumarið muni jafnvel aldrei koma. Meira í gríni
en alvöru þó. En þótt sumarið virðist hafa verið lengi
á leiðinni er ástandið miklum mun betra en í fyrra.
Við erum bara svo fljót að gleyma. Vellirnir okkar eru
í flottu formi og engar skemmdir er að finna vegna
klakamyndunar, sem settu svo leiðinlegan svip á upphaf
síðasta sumars. Horfur eru góðar og ég efast ekki um að
sumarið verður frábært.
Þátttaka í klúbbastarfinu lofar einnig góðu og eru
allar líkur á því að fjöldi kylfinga verði með svipuðu
móti og undanfarin ár. Eftir gríðarlega fjölgun kylfinga
undanfarin 15 ár hefur dregið úr fjölguninni þannig
að fjöldi kylfinga hefur staðið í stað síðastliðin tvö ár.
Væntanlega má rekja hluta ástæðunnar til slæmrar
veðráttu undanfarin tvö sumur því veðurfar hefur
nefnilega áþreifanleg áhrif á fjölda íslenskra kylfinga,
sérstaklega þar sem við búum við frekar stutt tímabil.
En þrátt fyrir óbreyttan fjölda skráðra kylfinga benda
kannanir til þess að kylfingum utan golfklúbba fari
fækkandi. Fækkunin er ekki mikil, en hún er þó
merkjanleg. Þó engin ástæða sé til að fara á límingunum
yfir þessari fækkun er samt mikilvægt að bregðast við
þróuninni. Í viðbragðsteymið þarf alla aðila innan
golfhreyfingarinnar, þ.m.t. hinn almenna kylfing. Við
þurfum að leggjast á eitt og kynna íþróttina fyrir þeim
sem þekkja hana ekki eða eru á þeirri leið að gleyma
henni. Golfklúbbar þurfa að huga vel að markaðsstarfi
sínu, golfsambandið að útbreiðslu- og fræðslumálum
og við kylfingarnir þurfum að snúa okkur að þeim sem
standa okkur næst. Við þurfum að vera dugleg að bjóða
fjölskyldu, vinum og vinnufélögum á æfingasvæðið eða
golfvöllinn. Við þurfum að kynna þau fyrir hinu frábæra
félagsstarfi golfklúbba landsins og stækka þannig flóru
íslenskra kylfinga.
Golfið er ekki íþrótt fárra, heldur fjöldans. Það eru fáar
íþróttagreinar sem höfða jafn mikið til almennings eins
og golfið. Fólk úr öllum stéttum, á öllum aldri og öllum
getustigum getur leikið golf við frábærar aðstæður hér á
landi. Kostir íþróttarinnar eru endalausir og við þurfum
að vera dugleg að halda þeim á lofti.
Ég býð ykkur öll hjartanlega velkomin á fyrsta teig.
Góða skemmtun.
Með sumarkveðju,
Haukur Örn Birgisson,
forseti GSÍ
6 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Forseti Golfsambands Íslands