Golf á Íslandi - 01.05.2015, Blaðsíða 118
Handbókin byggir á reynslu valinkunnra vallarstjóra og hefur að geyma upplýsingar sem reiknað er með að geti
orðið flestum, ef ekki öllum, íslenskum golfklúbbum að miklu gagni. Rauðvingull hefur til þessa verið nefndur
túnvingull í daglegu tali meðal fagmanna í íslenskri golfhreyfingu en rannsóknir STERF, sem GSÍ er aðili að líkt og
önnur norræn golfsambönd, benda sterklega til þess að markviss ræktun rauðvinguls geri golfklúbbum, stórum
sem smáum, kleift að sameina gæði, sparnað og umhverfissjónarmið við rekstur og umsjón valla sinna.
Ritið verður aðgengilegt á rafrænu
formi á heimasíðu GSÍ, auk þess
sem hægt er að nálgast prentuð
eintök á skrifstofu GSÍ. Í því er að
finna skilmerkilega og auðskiljanlega
samantekt sem byggð er á niðurstöðum
vinnufundar golfvallastjóra frá
Norðurlöndunum, Bandaríkjunum
og Bretlandi, sem haldinn var í
Kaupmannahöfn. Fundinn sótti einn
Íslendingur, Birkir Már Birgisson,
vallarstjóri hjá Golfklúbbi Reykjavíkur.
Edwin Roald, golfvallahönnuður og
viðurkenndur vottunaraðili fyrir GEO-
sjálfbærnivottunina, þýddi ritið og
staðfærði, en hann situr í stjórn STERF fyrir hönd GSÍ. Áður hafa
GSÍ og Edwin unnið saman að þýðingu á upplýsingariti STERF um
blandaða landnotkun á og við golfvelli, sem nefnist „Opin svæði á
golfvöllum: Vannýtt auðlind“. Hefur það vakið nokkra athygli, ekki
aðeins meðal golfklúbba heldur einnig hjá sveitastjórnarfólki.
Umsjónarmenn golfvalla um land allt eru hvattir til að kynna sér
ritið, sem og forsvarsmenn golfklúbba, stjórnarfólk og fleiri. Er það
von Golfsambands Íslands að útgáfa og þýðing þessa rits geti orðið
liður í að skerpa sýn umræddra aðila á golfvallaumhirðu og gert
vinnu við golfvelli landsins markvissari.
Rauðvingull
á golfvöllum
Golfsamband Íslands
hefur þýtt handbók
norræna grasvalla- og
umhverfisrannsókna
sjóðsins STERF um
ræktun rauðvinguls á
golfvöllum. Ritið ber
heitið Rauðvingull á
golfvöllum.
510 7900
Njóttu þess að spila golf og láttu
okkur sjá um fasteignamálin þín.
Hafðu samband og fáðu frítt verðmat.
Við erum fagleg,
persónuleg og
skemmtileg.
Kristján Þ. Hauksson Þórunn Gísladóttir
Sölufulltrúi. Löggiltur fasteignasali.
696 1122
kristjan@fastlind.is
Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar: Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af hlaupi borið á aumt svæði
3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun, nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi skal ekki nota Voltaren
lengur en 7 daga án samráðs við lækni. Hafið samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju
innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða nefslímubólgu af völdum asetýlsal-
isýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota lyfið. Má ekki nota á síðustu 3 mánuðum meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og unglingum 14
ára og yngri. Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki á slímhúðir, augu, sár, exem, vessandi húðbólgu. Getur valdið húðertingu.
Varast skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi lyfjum eða að hylja notkunarsvæðið með loftþéttum umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar hjá öldruðum eða
astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð ef útbrot koma fram eftir notkun. Við notkun á stór húðsvæði eykst hættan á altækum
aukaverkunum, t.d. á nýru. Við brjóstagjöf eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði við lækni. Getur dregið úr frjósemi en þau áhrif ganga til baka.
Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis Healthcare A/S.
Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
Fæst án lyfseðils
Verkjastillandi og bólgueyðandi!
Nú í enn STÆRRI pakka!
Voltaren Gel
150g50%
meira m
ag
n!
Voltaren-3saman-A4 copy.pdf 1 01/02/15 15:39
118 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Rauðvingull á golfvöllum