Golf á Íslandi - 01.05.2015, Blaðsíða 26
Smáralind
NÝ OG BETRI
SÆTI Í ÖLLUM SÖLUM
Reynslunni ríkari eftir fyrsta árið
Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni er reynslunni ríkari eftir
fyrsta árið sitt sem atvinnukylfingur. Valdís er með keppnisrétt á LET
Access mótaröðinni í Evrópu líkt og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir - en Valdís
lék á mótaröðinni á síðustu leiktíð.
„Ég mun einbeita mér að LETAS móta
röðinni - en ég hefði einnig getað fengið
nokkur mót á sjálfri LET Evrópumóta
röðinni. Fyrirvarinn er stuttur fyrir slíkt
og ég tel því best að vera með 100%
fókus á LETAS mótaröðina,” segir
Valdís en hún hefur tvívegis fagnað
Íslandsmeistaratitlinum í golfi, 2009 og
2012. „Ég ætla að mæta til leiks hér heima á
Íslandsmótið í holukeppni og Íslandsmótið.”
Valdís hefur lagt mikla áherslu á púttæfingar
í vetur og líkamlega þáttinn. „Ég tók mér
frí í desember eftir úrtökumótið en lagði
áherslu á að styrkja mig og bæta þolið.
Æfingarnar hafa markast af því veðurfari
sem hefur verið á Íslandi í vetur en ég hef
reynt að nýta þá möguleika sem eru í boði.”
Hvað markmiðin varðar segir Valdís að
hún vilji halda þeim fyrir sig - en stóra
markmiðið sé að komast á sjálfa LET
Evrópumótaröðina. Til lengri tíma litið
er markmiðið að komast á topp 50 listann
í heiminum og banka á dyrnar á LPGA
mótaröðinni í Bandaríkjunum.”
Styrkurinn sem hún fær frá Forskoti skiptir
öllu máli fyrir Valdísi í atvinnumennskunni.
„Án hans gæti ég ekki farið á mótaröðina
enda mikill kostnaður sem fylgir þessu. Ég
er þakklát fyrir stuðninginn frá þeim sem
standa að Forskoti og einnig öðrum sem hafa
stutt mig. Ég mun halda styrktarmót í sumar
sem hjálpar mér að ná endum saman.”
Valdís hlakkar til að fá Ólafíu Þórunni með
sér á LETAS mótaröðina. „Fyrstu mótin í
fyrra voru virkilega erfið - enda var ég alein
og þekkti ekki neinn. Það lagaðist strax og
ég fór að kynnast stelpunum og deila með
þeim herbergjum og fara út að borða með
þeim á ferðalögunum. Það verður gott að
geta talað íslenskuna á þessum ferðalögum.”
Hef þroskast mikið sem kylfingur
Þórður Rafn Gissurarson úr GR byrjaði keppnistímabilið nokkuð snemma á þýsku Pro Golf Tour atvinnu
mótaröðinni. Hann vonast til þess að fá tækifæri á nokkrum mótum á Áskorendamótaröð Evrópu en
Þórður ætlar að leika á Íslandsmótinu á Garðavelli - en mótin á Eimskipsmótaröðinni verða ekki mörg hjá
atvinnukylfingnum á þessu ári.
„Undirbúningurinn fyrir þetta tímabil
var ekki mikill. Það hefur verið mikið
að gera í keppnisgolfinu en ég æfi eins
mikið og hægt er. Undanfarin tvö ár
hef ég lagt mesta áherslu á stutta spilið
með þjálfaranum, Justin Blazer, sem er
með aðsetur í Viera, Florida. Hann hefur
hjálpað mér mjög mikið. Ég er að vinna í
að laga nokkra hluti í sveiflunni með Inga
Rúnari Gíslasyni íþróttastjóra GR – en
það er langtímaverkefni,” segir Þórður um
undirbúning sinn fyrir tímabilið.
Markmiðin eru skýr hjá Þórði. „Ég þarf að
vera á meðal fimm tekjuhæstu á móta
röðinni sem ég er á til þess að komast
lengra. Áskorenda- og Evrópumótaröðin
eru langtímamarkmiðin. Ég hef einnig sett
mér það markmið að verða Íslandsmeistari
í golfi - hef verið tiltölulega nálægt því
síðustu ár.”
Þórður segir að styrkurinn frá Forskoti
skipti miklu máli og sé mikilvægur. „Þetta
er kostnaðarsamt og erfitt. Ég held að
fáir viti hvernig þetta er hjá okkur. Það
er því mjög mikilvægt að hafa sjóð eins
og Forskot sem hjálpar manni við að elta
drauminn. Erfitt að gera það ef enginn
peningur er til staðar.”
„Ég er búinn að þroskast mikið sem
kylfingur, sérstaklega síðustu tvö ár. Eftir
sigurinn á Jamega Tour í Englandi í fyrra
fékk ég hungrið aftur. Var búinn að dala
og sjálfstraustið var ekki mikið. Sigurinn
gjörbreytti því öllu. Einn af mínum bestu
dögum hingað til.
Ef ég verð ekki kominn á Áskorenda
mótaröðina á næstu tveimur árum þá
getur vel verið að ég láti staðar numið. Ég
er 27 ára og ekki að yngjast. Ef ég er enn
á sama stað eftir tvö ár þá er ég líklegur til
að hætta í atvinnumennskunni og snúa
mér að öðru. Ég þarf að vera raunsær.
Hinsvegar ætla ég mér að komast á
mótaraðirnar fyrir ofan þannig að það er
talsverður tími í að maður fari að vinna á
skrifstofunni.”
26 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Ómetanlegur stuðningur úr Forskoti