Golf á Íslandi - 01.05.2015, Side 38
Það fylgir því mikið álag að vera afreksmaður í íþróttum og segir
Jón að golfið sé frábær leið til þess að ná sér niður andlega í erfiðum
törnum.
„Ein stærsta ástæðan fyrir því að ég vil spila golf er að ég get
„kúplað” mig frá því sem ég er að gera alla daga í vinnunni. Að vera
úti í góðum félagsskap og gleyma sér í þessu er ómetanlegt. Þar sem
golfið tekur oft langan tíma fer maður að ræða ýmis mál við félagana
sem maður hefur oft ekki tíma til að ræða. Þrátt fyrir að maður
sé oft „pirraður” yfir einhverjum lélegum höggum er þetta mjög
afslappandi íþrótt. Golfið krefst einnig einbeitingar og það heillar
mig. Maður finnur mjög fyrir því hve illa hlutirnir geta farið ef
maður missir einbeitinguna. Það er líka alltaf einhver keppni í gangi
og mér gengur betur ef ég er að keppa.”
Brúðkaup og stórmót
Lilja Björk Guðmundsdóttir er unnusta Jóns Arnórs og saman eiga
þau tvö börn. Lilja hefur áhuga á golfi líkt og Jón Arnór og þau
reyna að leika saman þegar tækifærin gefast. Það er óvíst að sumarið
2015 verði golfsumarið mikla hjá þeim Jóni og Lilju því þau ætla
að gifta sig í júlí og síðan taka við stífar landsliðsæfingar vegna
úrslitakeppni EM í körfubolta hjá landsliðsmanninum.
„Við lékum meira áður en börnin fæddust og þar sem ég er mikið á
ferðalögum í vinnunni þá lendir það mest á henni að sjá um börnin
á meðan ég er í burtu. Það hefur því ekki gefist mikill tími fyrir
hana í golfinu að undanförnu en við reynum að nýta þau tækifæri
sem gefast til að spila golf saman. Hún hefur gaman að þessu og er
virkileg keppnismanneskja. Það er engin keppni okkar á milli en við
gætum búið hana til ef því er að skipta. Við spilum einnig tennis af
og til - okkur til skemmtunar. Það verður nóg um að vera í sumar
hjá fjölskyldunni. Brúðkaup í júlí, stórmót hjá landsliðinu í haust
og ef það gengur vel í úrslitakeppninni gæti keppnistímabilið staðið
fram til loka júní. Ég býst því ekki við að geta gefið golfinu eins
mikinn tíma og áður í sumar - en ég mun nýta hverja einustu stund
sem gefst til að komast í golf.”
Oft í basli með að finna rástíma
Landsliðsstrákarnir í körfuboltanum eru ekki mikið í golfinu að sögn
Jóns en Hlynur Bæringsson fer þar fremstur í flokki. Jón Arnór er
félagi í Golfklúbbi Reykjavíkur og hefur tekið þátt í meistaramótinu
sem er að hans mati stórskemmtilegur viðburður.
„Það eru ekki margir kylfingar í landsliðshópnum en Hlynur
Bæringsson hefur gaman af golfi líkt og Pavel Ermolinskij. Ég
er aðallega að spila með mínum gömlu félögum úr KR. Þar má
nefna Ólaf Ægisson, Böðvar Guðjónsson og Pál Kolbeinsson. Jón
Norðdal Hafsteinsson, gamall landsliðsfélagi úr Keflavík, er einn sá
grimmasti í golfinu úr körfunni og við spilum oft saman. Ég leik því
oftast í Grafarholtinu og á Korpunni - en það er oft erfitt að finna
rástíma og þar sem ég er ekki mjög skipulagður lendi ég oft í því að
fá ekki rástíma. Ég er því oft í „bölvuðu” basli að komast í golf þar
sem ég er allt annað en skipulagður. Það gengur víst ekki þegar mikil
aðsókn er í rástímana.”
87 högg er besta skorið
„Besta skorið hjá mér er 87 högg. Ég er yfirleitt að berjast við að
komast undir 90 höggin. Ég held að bestu hringirnir hjá mér hafi
verið í meistaramóti hjá GR - þá fann ég hvað það er gaman að
keppa í golfi. Það á miklu betur við mig að fara í keppni heldur en
að vera með „hangandi” haus og enga einbeitingu. Ég einbeiti mér
miklu betur og spila betur fyrir vikið þegar ég er í keppni. Golfið er
ávanabindandi og þegar ég dett í golfgírinn yfir sumartímann hugsa
ég lítið um annað. Dag og nótt.”
hnotskurn
Jón Arnór Stefánsson,
fæddur 21. september 1982.
Forgjöf 14.7. Klúbbur: GR.
Atvinnumaður í körfubolta með
Unicaja Malaga á Spáni.
Ferill:
2000-2002: KR
2002-2003: TBB Trier, Þýskaland
2003-2004: Dallas Mavericks,
Bandaríkin
2004-2005: Dynamo St. Pétursborg,
Rússland
2005-2006: Napólí, Ítalíu
2006-2007: Valencia, Spánn
2007-2008: Róm, Ítalíu
2008-2009: KR
2009: Benetton, Ítalíu
2009-2011: Granada, Spánn
2011-2014: Zaragoza, Spánn
2014-: Malaga, Spánn
38 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Golfið er ávanabindandi – hugsa um það dag og nótt