Golf á Íslandi - 01.05.2015, Page 32
Það er að mörgu að huga
Þeir sem hafa áhuga á að komast í
nám þurfa að taka ákvarðanir um
ýmislegt: Þar á meðal má nefna;
staðsetning skóla, hvaða námsbraut
á að velja, mikilvægt er að finna skóla
við hæfi, búa til lista yfir þá skóla sem
koma til greina, senda ferilskrá á
þjálfara, gott er að velja tölvupóstfang
sem vekur athygli, senda meðmæli
frá golfþjálfara, senda upplýsingar um
þá skóla sem þú hefur haft samband
við, hvenær þú sendir á þá og hverju
þeir svöruðu. Ýta þarf við sumum
þjálfurum með því að minna á sig
og senda aftur. Halda sambandi við
þjálfarann á u.þ.b. 3-4 vikna fresti
þegar svar hefur borist.
Ef svarið er jákvætt frá fleiri en einum
skóla þarf að skoða hvað hentar
best. Þar þarf að athuga enn betur
atriði s.s. staðsetningu, þjálfarann,
liðið, golfmótin, skólastyrkinn og
mikilvægt er að gera sér grein fyrir að
styrkir geta verið mismunandi.
Prófin sem þarf að taka
Til þess að komast í gegnum ferlið þarf að taka stöðupróf sem
meta ýmsa kunnáttu. Prófin eru tvennskonar.
TOEFL er próf sem notað er til að meta kunnáttu fólks í enskri tungu.
Hægt að taka á netinu og þarf að skrá sig tímanlega í slíkt próf.
SAT er próf þar sem færni í ensku og stærðfræði er könnuð. Hægt er
að taka prófið á netinu eða hér á landi.
Hvað þarf að gera?
Að sækja um skólastyrk er eins og að leita
að vinnu og samkeppnin er gríðarleg. Yfir
900 skólar bjóða upp á háskólagolf og gera
má ráð fyrir að þjálfarar fái yfir 50 ferilskrár
í hverri viku.
Ferilskráin þarf að vera ítarleg og nákvæm.
Allar helstu persónuupplýsingar, helstu
afrek, mótaskrá síðustu ára, árangur á þeim
mótum, höggafjöldi og ýmislegt annað.
Ítarlegar upplýsingar um t.d. högglengd með
hverri kylfu, mótareynslu og tölfræði.
Svara þarf spurningunni af hverju þig langi
að fara í háskóla og spila golf.
Hvert er þitt helsta markmið, hvernig
heldur þú að háskólagolf komi til með að
láta draum þinn verða að veruleika?
Útbúa myndband þar sem sýnt er frá sveiflu
framan á og frá hlið (beint fyrir aftan í
höggstefnu): Í myndbandinu þarf eftirfarandi
að koma fram: Full sveifla, driver, 6-járn
og PW. Hálfsveifla með 54 gráðum eða
einhverju svipuðu verkfæri. Vipp, einfalt
vipp, pútt - ekkert of langt. Það getur
skipt máli að vera hugmyndaríkur í vinnslu
myndbandsins.
Hvenær á að byrja undirbúning?
Strax í dag, byrjaðu nú þegar að gera ferilskrá
og uppfærðu hana reglulega, skoðaðu skóla á
netinu, fáðu umsagnir frá kylfingum sem eru
nú þegar í Bandaríkjunum. Skráðu þig í þau próf
sem þarf að taka og vertu vakandi fyrir því að
skrá þig með góðum fyrirvara.
Þóra Kristín Ragnarsdóttir úr Keili er efnileg í golfíþróttinni og er án efa að velta fyrir sér
þeim möguleikum sem standa henni til boða hvað varðar háskólagolfið.
32 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Dreymir þig um háskólagolf í Bandaríkjunum