Skák - 01.09.2005, Síða 11
dagur íslenskra afreka því okkar
efsti maður í mótinu, Askell
Orn, varð í 5. sæti. Við vorum
síðan fjórir meðal þeirra sem
voru í 8.-13. sæti: Gylfi, Torfi,
Sigurður og Smári. Öruggur sig-
urvegar varð hins vegar fjórtán
ára piltur, Helgi Dam Ziska að
nafni. Um kvöldið var okkur
boðið af bæjarstjórn Þórshafnar
á veitingastaðinn Rio Bravo í
nautakjötsveislu sem var frábær.
Á sunnudeginum kl. 14 hófst
svo sjálf landskeppnin, fyrri um-
ferð. Teflt var í grunnskólanum í
Vestmanna. Ursit urðu sem hér
segir (stigin eru færeysk):
Boi*ð Faereyjar Vinn. ísland Vinn.
1. Hans Kristian Simonsen (2308) 1/2 Jón Garðar 1/2
2. Flóvin Þór Naes (2267) 1/2 Áskell 1/2
3. Rógwi W. Rasmussen (2239) 0 Gylfi 1
4. Torbjörn Thomsen (2129) 1 Jón Þ. 0
5. Helgi Dam Ziska (2047) 0 Torfi 1
6. Martin Brekká (2029) 1 Smári Rafn 0
7. Bernhard Thomsen (1918) 1 Viðar 0
8. SjúrðurThorsteinsson (1870) 1 Hjörleifur 0
9. Andrias Ziska (1795) 1 Sigurður 0
10. Kári Durhuus (1760) 0 Ari 1
Alls 6 4
Eins og sést á töflunni gekk okk- ur ekki vel, en hins vegar var færeyska liðið einfaldlega sterkara og átti sigurinn fyllilega skilinn. Á mánudeginum var síðan hald- ið til Klaksvíkur þar sem seinni umferðin fór fram. Undirritaður var býnsa ósáttur við eigin frammistöðu í fyrri umferðinni og staðráðinn í að vanda sig meira í þeirri seinni. Mig grunar að fleiri hafi farið með sama hugarfari í seinni umferðina, því úrslitin urðu þessi:
Borð Færeyjar Vinn. ísland Vinn.
1. Hans Kristian Simonsen (2308) 0 Jón Garðar 1
2. Carl Eli Samuelsen (2270) 0 Áskell 1
3. Flóvin Þór Næs (2267) 0 Gylfi 1
4. Eyðun Nolsoe (2190) 0 Jón Þ. 1
5. Finnbjorn Vang (2107) 0 Torfi 1
6. Torkil Nielsen (2079) 0 Smári Rafn 1
7. Terji Petersen (2040) 0 Viðar 1
8. Herluf Hansen (1997) 1 Sigurður 0
9. Rani Baldursson (1843) 1/2 Gunnar 1/2
10. Rógvi Dragaberg (1608) 0 Ari 1
Alls 11/2 81/2
s K A K
107