Skák - 01.09.2005, Page 32
Lenka átti slæmt mót og tefldi
nokkuð undir stigum með stiga-
árangur 2066. Hún náði ekki
að vinna neina skák og gaf eftir
þegar líða tók á mótið eftir að
hafa virkað mjög solid í fyrstu
umferðunum.
Guðlaug þjáðist greinilega af æf-
ingaleysi og lék nokkrum fínum
stöðum niður klaufalega með
grófum afleikjum. Stigaárangur
Guðlaugar var 2002 elóstig.
Lilja átti mjög slæmt mót, vann
eina skák en allar hinar töpuð-
ust. Var heillum horfinn og virt-
ist einnig vanta æfingu. Lék
grátlega af sér einni af sinni
bestu skákum í einum leik eftir
að hafa yfirspilað andstæðing
sinn í byrjuninni. Stigaárangur
Lilju var 1796 stig.
Sigurlaug var með stigaárangur
upp á 1874 sdg og var sama
uppi á teningnum hjá henni og
hjá Lilju og Guðlaugu, þ.e. æf-
ingaleysi sem sást í grófum af-
leikjum.
Heilt yfir björguðu stelpurnar
því sem bjargað varð með því að
skilja austurrísku stelpurnar eftir
í neðsta sætinu. Reyndar var
ljóst fyrirfram að róðurinn yrði
erfiður því flestar sveitirnar eru
sterkar og fáar veikar sveitir líkt
og á Olympíumótum. Engu að
síður hefðu stelpurnar átt að
geta betur og þær vita það. Fyr-
ir utan Lenku þurfa þær að tefla
meira og Sigurlaug og Guðlaug
tefldu strax eftir mótið í áskor-
endaflokki og er það vel.
Fæðingarstaður Taflfélags Reykjavíkur
Kirkjuhvoll, Kirkjutorgi 4, er við Kirkjutorg og snýr að Dómkirkjunni. Þetta var 3 hœða timburhús og hiðfyrsta í Reykjavík par
semfyrir var komið miðstöðvarbitun. Nú eru reykháfarnir horfnir og húsið hefur verið „forskalað”. Mynd Ólafur Magnússon.
í skákgrúski mínu rakst ég á
grein í Morgunblaðinu 5. októ-
ber 1940 undir heitinu: Fyrsta
og elsta taflfélag Islands -
Taflfélag Reykjavíkur 40 ára
eftir Pétur Zophóníasson. Pétur
segir svo frá: „Arið 1902 vorum
við Jens Waage og D. Thomsen
konsúll forstöðumenn þjóðhá-
tíðar Reykjavíkur. Nokkur
ágreiningur var um atriði, er
snertu hátíðina, og vildum við
128
S K A K