Skák - 01.09.2005, Síða 55
r
Hannes Hlífar Islandsmeistari 2005
Hannes Hlífar Stefánsson, stór- ;
meistari, varð Islandsmeistari, að
venju. Þetta er fimmti sigur hans
í röð og sá er sjöundi á síðustu
átta árum, en hann tók ekki þátt
í áttunda skiptið! Hannes Hlíf- j
ar vann mótið nokkuð örugg- j
lega, en hann tryggði sér sigur í j
áttundu umferð, þegar hann j
lagði hættulegasta keppinaut J
sinn, Stefán Kristjánsson, að
velli. Hannes Hlífar fékk 9 vinn- j
inga í 11 skákum og var tafl-
mennskan örugg og vönduð, j
eins og hans er von og vísa, en j
krafturinn hefur oft verið meiri. j
Alþjóðlegi meistarinn, Stefán
Kristjánsson, varð annar, hálfum
vinningi á eftir Hannesi Hlífari. j
Stefán barðist af mikilli hörku, j
m.a. í úrslitaskákinni gegn !
Hannesi Hlífari, og er vel að
öðru sætinu kominn.
Jón Viktor Gunnarsson, alþjóð- j
legur meistari, varð þriðji og átti
sitt besta mót í mörg ár. Hann j
tapaði ekki skák á mótinu, og
sama gildir um Sigurð Daða,
sem varð fjórði. I fimmta sæti j
kom Björn Þorfmnsson, en efstu j
rnenn röðuðu sér á töfluna í
samræmi við stig.
Heimir Ásgeirsson hafnaði í
sjötta sæti. Hann var langlægsti
keppandinn á stigum og kom
mjög á óvart með góðri frammi- j
stöðu. Heimir tefldi af mikilli j
hörku allt mótið og má vera á-
nægður með sinn hlut, þótt
hann hafi gleymt drottningunni !
í uppnámi í síðustu umferð, í
unninni stöðu gegn Stefáni.
Árangur Snorra og Þorsteins var j
nokkurn veginn í samræmi við j
stig.
Ingvararnir voru ekki í stuði á j
þessu móti.
Sævar veiktist, þegar þriðjungur j
mótsins var að baki, og er raun- ;
ar aðdáunarvert, að hann hafi j
lokið mótinu. Sigurður Páll
fékk engan tíma til að undirbúa j
sig fyrir módð og því fór sem
fór.
Um úrslit vísast að öðru leyti til
meðfylgjandi töflu, en þó verður
ekki við mótið skilist, án þess að
fjalla um óvenjuhátt hlutfall af
jafnteflum. Af 66 skákum í
landsliðsflokki lauk 32 með j
jafntefli, eða 48,5%. Af 32 jafn-
teflisskákum voru 6 “örskákir”
(færri en 10 leikir!) og sex “stór- j
meistarajafntefli” til viðbótar
(10-19 leikir). Það er erfitt að
átta sig á ástæðunni fyrir þessari j
friðsemd keppenda, en varla hef-
ur mótið verið svo erfitt, þótt
enginn væri frídagurinn. Er
þetta metnaðarleysi, eða liggja J
aðrar ástæður að baki? Líklega i
leika skákstigin stórt hlutverk í j
þessum efnum. Skákmenn vilja
ekki hætta stigunum, m.a. vegna
þess, að þau eru aðgöngumiði
þeirra að landsliði og ýmsum
mótum. Það er orðið hart í
heimi, þegar stigin hafa letjandi j
áhrif á taflmennsku manna, en j
sú virðist raunin.
Skákstjórar á Islandsþinginu, j
bæði í landsliðs- og áskorenda- j
Hannes Hlífar Skákmeistari Islands
2005 með sigurverðlaunin.
flokki, voru Gunnar Björnsson,
Olafur Ásgrímsson og Páll Sig-
urðsson. Þeir héldu af öryggi
utanum framkvæmdina.
8. umferð:
Hvítt: Stefán Kristjánsson
Svart: Hannes Hlífar Stefánsson
Skoski leikurinn
Informator: C45
l.e4 e5 2.Rf3 Rc6 3.d4 exd4
4.Rxd4 Bc5 5.Be3 Df6 6.Rb5
S K A K
151