Skák


Skák - 01.09.2005, Side 66

Skák - 01.09.2005, Side 66
Zappa sigraði með yfirburðum á heimsmeistaramóti tölvuforrita Það var skemmtileg nýjung á skáksviðinu hérlendis, að Há- skólinn í Reykjavík ákvað að halda Heimsmeistaramót tölvu- forrita í skólanum, og ekki spillti samvinnan við Skáksambandið um skákhátíð fyrir ánægjunni af þessu framtaki. Dr. Yngvi Björnsson, dósent í tölvunar- fræði við skólann, bar hitann og þungann af undirbúningi og framkvæmd mótsins, f.h. skól- ans, en skákstjóri, auk hans, var Jaap van den Herik, frá Hollandi. ICGA, alþjóðasam- band um tölvuleiki (Inter- national Computer Ganres Association) stendur fyrir heimsmeistaramótum skákfor- rita og var forseti sambandsins, alþjóðlegi meistarinn, David Levy, viðstaddur setningu og mestan hluta mótsins. Friðrik Olafsson, stórmeistari, varð góð- fúslega við beiðni mótshaldara um að setja mótið. Tækninni hefur fleygt fram á undanförnum árum og nú er svo komið, að menn ráða lítið við tölvuforritin. Sjálfur Kasparov tapaði fyrir allmörgum árum fyrir forritinu Deep Blue og annað forrit, Hydra, niðurlægði ofurstórmeistarann, Michael Adams, fyrir stuttu, 5]/2-i/2. Forritin tólf, sem tóku þátt í heimsmeistaramótinu núna, eru frá sex löndum, Israel, Þýska- landi, Frakklandi, Hollandi, Belgíu og Bandaríkjunum. Mótið var merkilegt fyrir þá sök, að nýliðar tóku 1. og 2. sætið og sigurvegarinn, Zappa, vann með fáheyrðum yfirburðum, hlaut 10'/2 v. af 11 mögulegum. Juni- or, sem sigraði á síðasta móti, lenti í 5.-6. sæti, og eitt sigur- sælasta forrit á undanförnunt árum, Shredder, varð í 3.-4. sæti. Þekktasta forrit heims, Fritz, gat ekki tekið þátt, að þessu sinni, og fyrrnefnt Hydra hefur aldrei tekið þátt í heimsmeistaramót- unum. Ef til vill eru forráða- menn þessara forrita fegnir að sleppa við að lenda í Zappa og Fruit. Segja má, að með þessu móti ljúki “valdatíma” forritanna, Fritz og Shredder, sem hafa haft nokkra yfirburði heimsmeistara- mótunum til þessa. Það verður fróðlegt að fylgjast með fram- gangi nýju forritana í framtíð- inni. Bandaríkjamaðurinn, Anthony Cozzie, hefur forritað Zappa, og byrjanafræðingurinn er Erdogan Giinez. Höfundur Fruit er Fabi- an Latouzey, Frakklandi, og byrjanafræðingurinn er Marc Lacrosse, Belgíu. Því má bæta við, að Zappa er ekki nefnt í höfuðið á tónlista- manninum umdeilda, Franka Zappa, heldur féltk Cozzie hug- myndina að nafninu, þegar hann las bók eftir Pandolfini, “Chess Openings: Traps and Zaps”. Úrslit mótsins urðu eftirfarandi: 1. Zappa, IO1/2 v. af 11. 2. Fruit, 81/2 v. 3. -4. Deep Sjeng og Shredder, 7'/2 v. hvort. 5. Crafty, 61/2 v. 6. Junior, 61/2 v. 7. Diep, 51/2 v. 8. Jonny, 4i/2 v. 9. The Baron, 4 v. 10. IsiChess, 21/2 v. 11. The Crazy Bishop, 2 v. 12. Futé, 1/2 v. (jafntefli við Zappa!) Hraðskákmót, umhugsunartími 7 mín.: 1. Shredder. Mót í Fischer-Slembiskák, um- hugsunartími 5 mín+10 selc: 1 .-2. Jonny og Shredder. Það var dálítið sérkennilegt fyrir skákáhugamenn að koma inn í skáksal tölvumótsins. Menn eru vanir því á skákstað að verða að hvísla, ef menn ætla að segja eitt- hvað, en þarna var annað uppi á tengingum. Viðstaddir höfðu hátt og hlógu mikið í tölvusaln- um og skemmtu sér upphátt og vel! Stundum lá við, að þeir trufl- uðu einbeitingu keppenda á Is- landsþinginu í næsta sal, en það var hins vegar engin hætta á því, að þeir truflaðu “álskrímslin”! Að lokum kemur hér skák úr 7. umferð, þar sem Zappa sigrar ríkjandi heimsmeistara, Junior, í skemmtilegri skák, og leggur þannig grunninn að öruggum sigri á mótinu. 162 S K A K

x

Skák

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.