Kjarnar - 01.10.1953, Page 9

Kjarnar - 01.10.1953, Page 9
veiðibráður og misreiknað stökkið, því lenti hann á hand- legg Jocýar, rétt í því að hún ætlaði að þamba mjólkina, og glasið, með öllu, er í því var hentist langt út á gólfið. — Kisi litli var ekki vitund sneyptur, en hann sá mest eftir ljúffengu fuglaketinu, er hann hafði orðið af. En hann tók brátt að mala ánægjulega um leið og hann tók sér bessaleyfi til þess að lepja upp mjólkina, er flóði út um gólfið .... Hún starði máttvana af skelf- ingu á litla vesalinginn, er lá fyrir framan hana í rúminu og engdist í áköfum krampateygj- um. Fæturnir stóðu stífir út í loftið, og útspenntar klærnar læstu sig í sængina. Um leið og hann gaf frá sér sárt og átak- anlegt væl, valt hann dauður útaf .... Henni lá við að æpa af angist, er hún sá stirnað hræ kattarins fyrir framan sig. Ef kisi litli hefði ekki einmitt á þessu augnabliki sett um mjólkina, og drukkið hana svo upp af gólfinu, lægi hún nú hér stirnað lík í stað hans. — Henni duldist það ekki, að eitri hafði verið blandað saman við mjólkina, en var henni ætlað það, eða var hér um hræðilegan misskilning að ræða hjá lækninum? — í huga hennar vaknaði ægilegur grunur, sem heltók hug'a henn- ar og hjarta. Gat það verið að fjárhaldsmaður hennar vildi hana feiga? Kœnleg gildra. Eftir þetta forðaðist Jocý að drekka mjólkina, sem fjárhalds- maður hennar blandaði „með- ulunum“ saman við. Og þegar henni fór batnandi dag frá degi, staðfesti það grun hennar um að seigdrepandi eitri hefði ver- ið blandað saman við mjólkina! Hún þráði heitt þá stund, er Joy kæmi til þess að sækja hana. Hún var í rauninni fangi hjá lækninum, þótt hann kæmi því svo fyrir að hún mætti ekki yfirgefa húsið, eða hafa sam- band við neinn, vegna smit- hættu, er ennþá stafaði frá veikindum hennar. — Hún fann það að lífi hennar var stöðugt hætta búin, þótt hún gæti ekk- er aðhafst, nema forðast að neyta þess, er líkur voru til að læknirinn, fjárhaldsmaður hennar, hefði getað blandað eitri sínu í. Ekki þýddi að kæra hann fyrir eiturbyrlun, til þess vantaði hana allar sannanir. — Hún vissi, að fyrr eða síðar hlyti hann að koma sér fyrir kattarnef. Það var aðeins tíma- spursmál hve langan tíma það myndi taka hann! KJARNAR — Nr. 30 7

x

Kjarnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.