Kjarnar - 01.10.1953, Side 10
Hún stóð fyrir framan skrif-
borð læknisins, en þangað hafði
hann kallað á hana. „Jocý, ég
hefi óvæntar fréttir að flytja
þér“, mælti hann allt í einu.
„Þið Joy giftist aldrei. Hann
fórst í seinustu árásarferð sinni
á þann hátt, að flugvél hans
rakst á þýzka sprengjuflugvél,
og báðar sprungu í loft upp.
Ég hefi hér skeyti frá herstjórn-
inni, sem sannar þetta!“ Hann
hélt á samanbrotnu skeyti, er
hann rétti að henni.
Henni fannst sem jörðin
gengi í bylgjum undir fótum
ser, er hún heyrði þessar ó-
væntu fréttir af láti unnusta
síns:
„Joy! Elsku hjartkæri Joy
minn, það getur ekki verið að
þú sért dáinn!“ veinaði hún í
sérri örvæntingu. Hún riðaði
við og hefði fallið í gólfið ef
læknirinn hefði ekki brugðið
skjótt við og gripið hana.
„Drekktu þetta, Jocý mín,
það hressir þig. Og fyrirgefðu
svo gömlum frænda þínum að
hann skyldi færa þér þessi
sorgartíðindi svona óundirbúið.
Ég athugaði ekki að hann var
þér svona kær, barnið mitt!“
Hann bar glas með víni að vör-
um hennar, og hún flýtti sér
að tæma það, til þess að falla
ekki í öngvit. — Um leið og
hún hafði teygað úr glasinu
rann það upp fyrir henni að
hún hafði séð tvö glös standa
á borðinu, er hún kom inn.
Annað var hálft en hitt fult.
Var þetta með dauða Joy, að-
eins kænleg gildra til þess að
fá hana til að drekka vínið, sem
eflaust var blandað eitri? —
Þegar hún leit í augu fjárhalds-
manns síns, er loguðu af djöful-
lega sigrihrósandi grimmd, var
hún ekki í neinum vafa lengur.
Um leið og glasið féll úr hönd-
um hennar og fór í þúsund
mola á gólfið, hrópaði hún í
sárri örvæntingu á Joy, unn-
usta sinn. Svo hvarf allt í svarta
móðu, og henni fannst hún sog-
ast inn í hyldýpi!
Hvar er ég?
Allt umhverfis hana var bik-
svart myrkrið. Hún kvaldist af
sárum höfuðverk og áköfum
sviða í hálsinum. Það sogaði
óhugnanlega í henni, er hún
reyndi að anda gegn um sam-
anherpt kokið. Tungan var eins
og spýtukubbur, er fyllti næst-
um út í munninn og ætlaði að
kæfa hana! — í fyrstunni gekk
henni erfiðlega að muna það,
sem skeð hafði, en smátt og
smátt rifjaðist það upp fyrir
henni. Hafði verið eitur í glas-
inu? Ef svo var hafði það ekki
nægt til þess að drepa hana, því
8
KJARNAR — Nr. 30