Kjarnar - 01.10.1953, Side 13
hennar, er hann gerði að fjár-
haldsmanni hennar! .... Um
þetta ákvæði erfðaskrárinnar
vissi hún ekki, annars hefði hún
skilið margt í fari frænda síns,
er henni þótti grunsamlegt.
Faðir hennar óttaðist að ættin
færi að deyja út, þessvegna tók
hann þessa ákvörðun, til þess
að ýta undir að hún giftist og
ætti börn, sem héldu uppi
heiðri ættarinnar!
Hugsanaflutningur.
Jocý hrökk upp við það, að
kistan var sett harkalega niður
og ekið var af stað! Hún mundi
glögglega allt, er henni hafði
birzt sem í draumi, og hún sá að
þetta var eina vonin hennar.
Hún ætlaði að freista þess að
senda Joy hugskeyti, ef svo
vildi til að hann væri einhvers-
staðar nærri London. Það voru
að vísu aðeins sára litlar líkur
til þess að Joy kæmi nógu
snemma til þess að bjarga
henni frá því að verða kviksett,
þótt hún kæmist í sálrænt sam-
band við hann ....
Hún lá og einbeitti huganum.
Svitinn spratt út á líkama
hennar og loftið var heitt og
kæfandi. Hinhversstaðar hlaut
að vera rifa, sem loft seitlaði
inn um, annars væri hún löngu
köfnuð. -— Hún varð að beita
allri stillingu sinni við að bægja
frá sér óttanum við kviksetn-
inguna, en nú mátti engin hugs-
un komast að nema hugsunin
um Joy. —- Um leið og hún
fann að sálin var að yfirgefa
líkamann, leið sársaukaþrungin
grátstuna frá samanherptum
hálsinum.
Kappflug um líf og dauða!
Hann heyrði vælið í lögreglu-
bifreiðinni, sem stöðugt nálgað-
ist. Um leið og hann eygði
kirkjugarðinn framundan kvað
við skámmbyssuskot, bíllinn
hallaðist og kastaðist til á veg-
inum. Þeir höfðu skotið annan
hjólbarðann í sundur, og innan
skamms hlutu þeir að ná hon-
um. Það gat ekki hjá liðið að
hann kæmi of seint. Jocý yrði
grafin lifandi, rétt fyrir augum
hans, eftir allt sem hann hafði
lagt á sig til þess að bjarga
henni ....
Meðan flugvél hans steyptist
stjórnlaus til jarðar, var sál
hans komin til móts við sál
unnustu hans. — Það mátti ekki
tæpara standa, að hann kæmi
til sjálfs sín aftur. Honum hafði
nauðuglega tekist að ná stjórn
á flugvélinni áður en hún
steyptist í sjóinn! — Eftir ná-
kvæma yfirvegun komst hann
að þeirri niðurstöðu, að enginn
KJARNAR — Nr. 30
11