Kjarnar - 01.10.1953, Page 15
setja unnustu hans í, sá hann
aðeins á blá-lokið á kistunni.
Andartak greip hann nístandi
örvænting og hann langaði til
að steypa flugvélinni yfir garð-
inn og láta vélbyssurnar sópa
burtu gröfurunum, sem voru að
kviksetja stúlkuna, sem hann
elskaði! — Þegar örvinglun
hans var að nálgast hámark,
kom hann allt í einu auga á
tómt sprengjuhylki. Fyrir eyr-
um hans hljómuðu síðustu orð
Jocýar, sem enduðu með sáru
hrygluhljóði;
„Ég kafna, Joy, þeir hafa
mokað yfir loftgötin . . . .!“
Joy þreif sprengjuhylkið,
opnaði gluggann á flugmanns-
klefanum og steypti vélinni
niður yfir kirkjugarðinn. Nú
valt á að hann hitti rétt. Líf
Jocýar gat verið undir því kom-
ið, þ. e. a. s. ef hún var ekki
þegar köfnuð. — Um leið og
grafararnir vörpuðu sér flötum
til þess að flugvélin rækist ekki
á þá ,skall eitthvað á kistulok-
inu og sprengdi stórt gat á það.
— Þegar Joy sá sprengjuhylkið
hitta, vissi hann, að nægilegt
loft myndi streyma inn í kist-
Þarna þagnaði konan andar-
tak og horfði yfir meðlimi Dul-
sagnar-klúbbsins, er sátu hljóð-
ir og fölir af geðshræringu og
hlýddu á sögu hennar.
„Já, herrar mínir, þannig var
það. Joy flaug sem leið lá til
næsta flugvallar og nauðlenti
vélinni. Þegar hann sá lögreglu-
bílinn, sem beið hans, barði
hann sig til blóðs og makaði því
út um sig allan. Hann vonaðist
til að þeir álitu hann alvarlega
særðan og tækju hann í sjúkra-
bílinn. — Brunabifreiðinni
tókst fljótlega að kæfa eldinn,
sem kom upp í vélinni. — Það
fór eins og hann vonaði, að þeir
settu hann á sjúkrabörur og
óku áleiðis til borgarinnar. —
Það tók hann ekki nema andar-
tak að slá mennina tvo niður
og síðan ók hann svo hratt sem
bíllinn komst áleiðis til kirkju-
garðsins .... Lögreglubíllinn
elti hann, en þótt þeim tækist
að skjóta sundur hjólbarðann,
gat hann komist til kirkjugarðs-
ins. — Honum tókst að frelsa
unnustu sína, áður en þeir náðu
honum, og fluttu til fangelsins.
Hann var dæmdur til margra
ára fangelsis, en eiturbyrlarinn,
fjárhaldsmaður Jocýar, fékk líf-
látsdóm (eins og hann réttilega
átti skilið!). í fangelsinu hafði
hann aðeins verið stutt, er hann
fékk að giftast Jocý, sem komst
til fullrar heilsu eftir allar
raunirnar, er hún hafði lent í.
— En eitt sinn skall óhamingj-
an yfir. V-2 sprengja sprakk
nærri Jocý, er hún og sonur
KJARNAR — Nr. 30
13