Kjarnar - 01.10.1953, Side 21
gera „lukku“. En hún safnaði
saman óhreinum sokkum og
skyrtum, er maður hennar átti.
Hann hafði enga löngun til þess
að láta hana fara með sér. Hann
kvað hana mjög heimska.
Hann hafði verið kröfuharð-
ur og oft krafizt þess, að skyrt-
ur væru stroknar aftur, ef nokk-
uð var hægt að verkinu að
finna.
„Eldhúsið og rúmið eru þín
starfssvið“, sagði hann við konu
sína. „Þar gerirðu gagn, en ekki
annarsstaðar“.
Kamma kom auga á sumar-
kjól, sem hún hafði eignazt á
hvítasunnunni. Hún hafði ekki
enn komið í kjól þennan.
Hún fékk skyndilega löngun
til þess að bregða sér í hann.
Hún hlustaði. Allur bærinn
virtist lífvana. Sigvard var þó
að líkindum ekki langt í burtu.
Og gamli Jens steig aldrei fæti
í nýja húsið. Eigi að síður lok-
aði hún að sér. *
Hún fór úr sorgarbúningnum
og fleygði honum á rúmið. Jú,
sumarkjóllinn var indæll. Það
var leiðinlegt, að hún mátti
ekki vera í honum á ferð um
húsið. Hana langaði til þess að
syngja.
Kamma settist á rúmstokk-
inn, í rósótta kjólnum, og hló
lágt og lengi.
Nú sátu allir í kránni og
KJARNAR — Nr. 30
þömbuðu kaffi, átu brauð og
hældu Kresten, sem var hinn
mikli maður sóknarinnar, jarð-
eigandi, sem átti fé á vöxtum í
banka, hafði verið í sóknar-
nefnd, formaður í stjórn mjólk-
urbúsráðsins, heiðursmeðlimur
í skotfélaginu, í amtsráði kyn-
bótafélagsmanna o. fl. o. fl.
Kamma sá í anda löng veit-
ingaborð með veitingum á. Við
þau sátu alvarlegir karlar og
konur. Margar öl- og vínkönnur
voru tæmdar, margir héldu
ræður um ágætismanninn látna
Kresten Vestergárd. Var mikið
lof borið á hann.
Kom fólk ekki hvaðanæva af
landinu til þess að kynnast bú-
skap hans?
Á fundum og mannamótum
hafði Vestergárd tekið til máls
og gefið viturleg ráð. Málsnjall
hafði hann verið, svo af bar.
Hinum látna var hælt fyrir
starfið innan sóknarinnar, og
dauði hans álitinn óbætanlegt
tjón.
En ekkjan hafði laumast burt
án þess að hlusta á mikið af
ræðum þeim, sem fluttar voru
í minningu manns hennar.
Menn sögðu, að hjónabandið
hefði verið svo gott, að Kamma
tilbæði þá jörð, er hann hafði
gengið á!
Ein með sorg sína? Nei. Ein
með gleði sína! Hún hafði leik-
19