Kjarnar - 01.10.1953, Page 24
nætur, eftir að hafa svalað
fýsnum hans. Þannig lék Krest-
en með hana um sex ára skeið.
Síðar skildi hún ekki, að hún
skyldi hafa búið svo lengi við
þetta, og ekki gengið burt. Ein-
hver þrái olli því, að hún var
svo þrásætin á Vestergárd.
Henni þótti afar vænt um jörð-
ina, og hafði ákveðið að verða
kona Krestens, til þess að geta
verið kyrr alla æfi.
Kvöld nokkurt hleypti hún
kjarki í sig og mælti: „Kresten.
Þannig getum við ekki farið að
ráði okkar lengur en komið er“.
Kresten hló og mælti: „Hvers-
vegna ekki, stúlkubarn? Fer
ekki vel á þessu?“
„Nei, öðru nær. Fólk talar um
þetta. Ég er siðprúð stúlka. En
þetta er------“.
„Vitanlega' ertu siðprúð“,
sagði hann. Hvað varðar okkur
um, hvað fólk segir? Eitthvað
þarf það að hafa til þess að tala
um. Lifirðu ekki eins og blóm
í eggi? Viltu fá nýja vetrar-
kápu?“
„Nei. Þess gerist ekki þörf.
Ég vil ekki vera hér, mér til
skammar og svívirðingar11. Hún
brazt í grát.
Hann hló og sagði: „Þá verð-
urðu að fara, lambið mitt. Það
er ekkert hægt við því að gera.
Ég fæ aðra stúlku“.
Ætíð fór hún halloka í við-
skiftunum. Hann var svo stór
og sterkur, og hafði ætíð sigur.
Henni varð nú ljóst, að hann
leit á hana sem duglega vinnu-
konu og vinkonu, er notast
mátti við, þar til hann fengi
ríka ekkju eða heimasætu. Þá
mundi hann, að líkindum,
gifta sig aftur.
Svo varð hún barnshafandi.
Kresten varð fokvondur. Hann
mælti: „Ég á ekki barnið“.
Kamma titraði af auðmýkt
og reiði. Hún sagði: „Hvenær
hefí ég látið annan en þig koma
nærri mér? Aldrei“.
Það varð töluverð óánægja
út úr þessu. Faðir Kömmu fór
til Krestens, en var fleygt á
dyr. Presturinn kom og var
harðorður. Endir málsins varð
sá, að Kresten gekk að eiga
Kömmu. Ekki gerði hann það
með ánægju. En hann var fínn
maður og vildi ekki falla í áliti
hjá sveitungum sínum. Hann
var hræddur um, að hann kæm-
ist ekki í bæjarstjórn án þess-
arar giftingar, og til þess ósig-
urs gat hann ekki hugsað.
Brúðkaupsmorguninn sagði
hann háðslega við Kömmu: „Þú
fékkst vilja þínum framgengt“.
Á þessari stund dó ást hennar
á Kresten, og hatur til hans
fæddist. Það óx og dafnaði í tíu
löng ár.
Barnið fæddist andvana. Hinn
22
KJARNAR — Nr. 30