Kjarnar - 01.10.1953, Qupperneq 27
meltingarfærum sínum, þess
girnilegri rétti bjó hún til. Hún
kynnti sér það, hvaða kjötteg-
undir og krydd væru óhollastar
veikum maga. Hún las fjölda
matreiðslubóka og mataræðis-
rita í þessu skyni. Hún sauð
mjólkurgraut handa manni sín-
um, og bjó til rétti úr fiskfarsi.
Þetta borðaði Kresten bölv-
andi og ragnandi. En ætíð fann
hann ilminn af gómsætum rétt-
um, og sá þá oftast fyrir augum
sér. Þessi matur var of kraft-
mikill fyrir hann. En oftast
sagði Kresten, er hann var að
borða létta matinn: „Fjandinn
hafi þetta. Komdu með dálítið
af því, sem þú ert þarna með“.
Kamma svaraði: „En Kresten,
læknirinn hefir sagt-----“.
„Ég veit vel hvað sá asni hef-
ir sagt. En ég vil ekki borða það
ómeti, er hann fyrirskipar“.
Kamma vakti um nætur og
las um magasjúkdóma. Hún
kunni allt um það upp á sína
tíu fingur, er Kresten var óhollt
að neyta. Og hún bjó til óholla
rétti handa honum, en afar
gómsæta.
„Fjandinn fjarri mér“, sagði
Kresten stundum. „Þú býrð til
svo skratti góðan mat, að ég get
ekki neitað mér um að borða
hann“. Og hann borðaði mat,
sem var honum eitur. Fjórum
sinnum fór hann í sjúkrahús
vegna magaveiki.
„Nú verðið þér að gæta yðar,
er þér komið heim, Kresten
Vestergárd“, sagði yfirlæknir-
inn við Kresten. En hann varp
öndinni og sagði: „Hvað er lífið
án góðs matar?“
I átta löng ár hafði Kamma
soðið, steikt og lagað mat handa
Kresten. Hún lagði mikið að sér
til þess að gera hina ljúffengu
rétti eins óholla og henni var
unnt. Réttirnir voru svo girni-
legir, að Kresten át sér til ó-
bóta af þeim. Hún fylgdi þó
alltaf forskriftum læknisins og
bjó til mat samkvæmt þeim.
Var það hennar sök, að hinn
„sterki“ Kresten unni góðum
mat? Nei. Nei. Hann ætlaði að
ærast af ílöngun, er hann fann
ilminn af hinum gómsæta mat.
Var það synd, að búa til góðan
mat? Nei. Nei.
Það var ekki hennar sök, að
stórbóndinn Vestergárd át sig
í hel. Hún hafði fundið hinn
eina veikleika hans: græðgina
í góðan mat. Örlögin hjálpuðu
henni á þann hátt, að láta
Kresten vera magaveikan. O, já.
Hún myrti hann smám saman á
átta löngum árum, með krydd-
uðum ídýfum, óhollum kökum
og fleiru.
Nú lá vegurinn opinn fyrir
hana og Sigvard. Hún hafði
KJARNAR — Nr. 30
25