Kjarnar - 01.10.1953, Side 28
ekkert gert, sem hægt væri að
refsa henni fyrir. Enginn getur
refsað konu fyrir það, þótt mað-
ur hennar drepi sig á miklum
og góðum mat. Hún var talin
heimsk. En það var hún ekki.
Kamma speglaði sig. Hún
vætti horn af vasaklútnum og
néri augun. Grátin þurfti hún
að virðast, sem merki þess, að
hún syrgði mann sinn. Hún ætl-
aði að þvo hendurnar. Það var
ekki vanþörf á því, að hennar
dómi. Það höfðu afar margir
tekið í hönd hennar í samúðar-
skyni, úti í kirkjugarðinum.
Kamma nam staðar framan
við eldhúsdyrnar. Agnete var
ekki ein. Sigvard var einnig í
eldhúsinu. En hve hún elskaði
rödd hans, þótt framburðurinn
væri skrítinn — hálf sænskur.
Hvað var Sigvard að gera í
eldhúsinu?
Hún stirðnaði, er Sigvard
mælti: „Nei, stelpa mín —• enga
kossa hér. Það er of áhættu-
samt. Víð hittumst á venjuleg-
um tíma í gamla vagnportinu“.
Þá sagði Agnete: „Bíða og
bíða, læðast og vera í felum.
Hvaða gagn er í því? Ég vil
ekki bíða lengur. Þú leikur með
mig“.
„Nei, það geri ég ekki“, sagði
Sigvard. „Ég elska þig og mun
giftast þér einn góðan veður-
dag. Ég hefi þúsund sinnum
gefið þér skýringu. Vertu ekki
heimsk. Við eigum ekki salt til
að salta með eitt egg. Það er
óþolandi. Við þurfum að eign-
ast Vestergárd, ljúfan mín. Og
Vestergárd er þess virði, að eft-
ir honum sé beðið um sinn“.
Agnete sagði: „Þú ert ekki
með öllu viti. Þú leynir ein-
hverju fyrir mér. Ég vil ekki
bíða þar til þú verður ekkju-
maður, að löngum tíma liðnum.
Þú ætlar fyrst að giftast henni,
og hún getur, ef til vill, lifað í
fjörutíu ár enn“.
„Nei. Þú þarft ekki að bíða
í fjörutíu ár“. — Kamma átti
erfitt um andardrátt, er hún
heyrði þetta.
„Biðin verður ekki mjög löng.
Eitt ár, ef til vill, eða tvö eða
þrjú. Er Vestergárd og ég ekki
þess virði, að beðið sé eftir okk-
ur ofurlítinn tíma?“
Agnete svaraði: „Jú, ef hægt
er að reiða sig á þetta. En —“.
„Ég verð ekkjumaður að fám
árum liðnum“. Agnete hló og
mælti; „Já, þú drepur hana.
Áttu ekki við það? Svo lendirðu
í fangelsi um sextán ára skeið“.
„Nei, ég geri það ekki. Hún
mun deyja af slysförum. Til-
viljun, vina mín. Þannig, að
engan verður hægt að draga
fyrir lög og dóm í sambandi við
lát hennar. Ef beðið er eftir
Framh. á bls. 31.
26
KJARNAR — Nr. 30