Kjarnar - 01.10.1953, Page 32

Kjarnar - 01.10.1953, Page 32
og konunni minni mundi geðj- ast illa að því“. „Eg álít, að manninum mín- um geðjaðist heldur ekki að því“, sagði frú Heilbron hlæj- andi. Árið 1945 giftist Rose Heil- bron mjög merkum skurðlækni, Nataniel Burstein, og eiga þau fjögurra ára dóttur. Vísindi hans komu henni að ómetan- legu gagni í einu af síðustu morðmálum hennar árið 1951. Málafærslumaðurinn Louis Bloom hafði kyrkt hjákonu sína eða ástmey í drykkjugildi í skrifstofu sinni. Saksóknari ríkisins hélt því fram, að hér lægi ásetningar- morð að baki,, vegna þess, að lögmaðurinn hefði viljað losna við ástmey sína, er var afar vínhneigð og farin að spilla fyrir honum við störf hans. Hinn ákærði neitaði ekki alger- lega sekt sinni. En skýrði frá því, að hann, snemma morgun- inn eftir, hefði gert ítrekaðar tilraunir til að fá hina drukknu konu til þess að fara heim. Og að lokum, er hann vænti starfs- fólksins á hverri stundu, hafði hann gripið um áhls hennar til þess, að stöðva óp hennar og öskur. Hegningarlög hefðu kom- ið honum í gálgann. En í varn- arræðu sinni tíndi frú Heilbron allt til, sem gat verið mannin- 30 um til varnar, með undraverðri læknisfræðilegri þekkingu, og breytti það öllu viðhorfinu. Og eftir að hafa gefið skýrslum sér- fræðinga langt nef, og sagt, að lík á skrifstofu lögmannsins væri skaðlegra fyrir starfsemi hans en lifandi manneskja. Væri þetta sorglegt slys, sem ekki væri hægt að dæma sem morð. Málafærslumaðurinn var ekki hengdur, en fékk nokkurra ára fangelsisvist. Daginn eftir fékk Rose Heil- bron bréf frá einum sinna fjöl- mörgu aðdáenda. Það var svo- hljóðandi: „Kæra frú! Þér getið ekki haldið áfram með það að fara úr einum réttarsalnum til ann- ars og komið fólki til að trúa því, að menn hafi rétt til þess að kyrkja ástmeyjar sínar. Allt verður að hafa sín takmörk". Síðasta stórmálið, sem hún flutti, hefir allur heimurinn enn í fersku minni. Það var málið gegn nítján ára manni, Derek Bentley, sem var ákærður fyrir að vera meðsekur í morði á lög- regluþjóni, en mun hafa verið saklaus. En hann hafði þó sam- kvæmt frásögn réttarins hvatt sextán ára gamlan félaga sinn til þess, að láta ekki undan lög- reglunni. Piltur þessi skaut á lögregluþjón og varð það hans bani. KJARNAR — Nr. 30

x

Kjarnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.