Kjarnar - 01.10.1953, Side 41

Kjarnar - 01.10.1953, Side 41
opnaðar aftur ■— og að þessu sinni með einbeittni mikilli. „Fyrirgefið að ég geri ónæði“ var sagt. „Sæll, faðir“, kom á eftir. Kjellás hafði sleppt Bink- en og stóð augliti til auglitis við hinn unga son sinn. „Hvaða erindi átt þú hingað?“ spurði Kjellás forstjóri. Tone leit fyrst á Binken og sagði svo: „Gitta bað mig að fara hingað og sækja þig. Hún liggur á fæð- ingardeildinni. Hún eignaðist tvíbura11. Forstjórinn fékk kökk í háls- inn. Hann spurði efablandinn: „Bað hún þig að sækja mig?“ Tone kinkaði kolli til sam- þykkis, og mælti: „Hana langar til að sýna þré drengina. Þeir líkjast þér afar mikið. Ég get ekið þér aftur uppeftir á morg- un“. „Drengir?“ Forstjórinn hristi höfuðið utan við sig. Svo gekk hann til dyra, föstum skrefum. Hann sagði á leiðinni: „Bíðið dálitla stund. Ég kem aftur. Ég þarf aðeins . . .“. Meira heyrðist ekki. Hann var kominn fram á ganginn. Tone snéri sér þá að Binken og sagði með rödd, sem titraði af fyrirlitningu: „Þú hegðar þér þá þannig“. „Hegða mér“, segir Binken svo hátt, að það nálgast öskur. „Ég? Spurðu hann. Ég hefi ekki komist undan þessu. Álíturðu að ég hafi getað hrundið honum frá mér, barist við hann og sigr- að? Ég hefi verið að skemmta honum eins og þið báðuð mig að gera. Ég er dauðþreytt“. Hún brosti og bætti við: „Og hann er alveg uppgefinn, orðinn eins og tuska“. Tone gekk nær Binken og mælti: „Álíturðu, að við get- um vanið hann af þessum kenj- um? Ég á við — — Hún kinkaði kolli. „Get ég fengið að vera með ykkur? Mig langar til þess að sjá drengina. Tvíburar! Minna mátti gagn gera“. Helen hafði ekki til hugar komið, að þessi borginmannlegi maður gæti orðið svo uppnæm- ur og raun bar vitni. Hún gekk á eftir honum áleiðis til her- bergis hans. Þau gengu inn í herbergið. Hann lokaði dyrun- um og sagði þegar: „Helen! Ég er orðinn — afi. Tvíburar. Drengir. Hvað á ég að gera? Gitta hefir sent Tone eftir mér. En ég er svo ringlað- ur, Helen. Yiltu vera svo góð að fara með mér?“ Hann sagði þetta eins og maður, sem er í nauðum staddur. „Auðvitað“, sagði Helen og brosti. „Ef þú þarfnast mín“. „Þarfnast þín. Sérðu ekki að 39 KJARNAR — Nr. 30

x

Kjarnar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.