Kjarnar - 01.10.1953, Page 49

Kjarnar - 01.10.1953, Page 49
í himininn. „Það kemur hvass- viðri“. ,,Sumarblærinn“ flýtti för sinni að strandaða skipinu. Bill mælti: „Þeir hafa væntanlega kallað á hjálp“. „Northstar“ sat alveg föst. Hinar aflmiklu vélar hennar gátu ekki hreyft hana, og þar sem fjaran óx, var ekki annað sýnilegt en áhöfn strandaða skipsins væri hætt öllum björg- unartilraunum. Sir John gekk æstur fram og aftur um stjórnpallinn. En í afturstafni stóð Helen ein og horfði ljómandi augum á, er „Sumarblærinn“ nálgaðist „Northstar". Öldurnar voru nú orðnar svo háar, að Bill komst ekki hjá því, að halda sér í brjóstrið stjórnpallsins. Þar sem Charlie Whitaker var við stjórn-völdin var Bill hvergi smeykur. Hann hugsaði ekki um hættuna, sem var því samfara að fara fast að grunninu eða hryggnum. Nú sá hann fólkið á þilfari „North- star“. Og þarna stóð Helen. Hún veifaði. Bill setti hátalara fyrir munn- inn og kallaði hástöfum: „Ohoj! Getum við hjálpað ykkur“. Augnablik leið, en þá drundi í sir John: „Farið áður en þið lendið í öngþveiti“. „Hafið þér beðið um hjálp?“ hrópaði Bill. „Hugsið um yðar mál“, svar- aði sir John fjúkandi reiður. Bill hristi höfuðið. Hann gat ekkert gert til bjargar í bili. En hann ákvað að vera í nánd við strandaða skipið. Það var enginn gamanleikur að hafa stjórn á „Sumarblæn- um“ í þvílíku hvassviðri, rétt hjá „hryggnum“. Svo kom dynjandi rigning og ekki sást til „Northstar" þrátt fyrir litla fjarlægð. En Bill gafst ekki upp. Að lokum kom flóðið, hægt og hægt. En enn mundu marg- ar klukkustundir líða þar til „Northstar“ gæti hafið björg- unartilraunir að nýju. Það birti, og Chimpy kom upp á stjórn- pall. Gamli maðurinn kreisti augun aftur að hálfu leyti og horfði yfir hið æsta haf. Þá mælti hann: „Nú kemst hún af hryggnum. Vindurinn breytir um stefnu. Hann þrýstir sjón- um inn yfir grynnslin samtímis flóðinu. Og þá mun skipið losna“. „Álíturðu það?“ spurði Bill. „Nei. Ég er viss um það“. Þeir stóðu og horfðu á „Northstar", þar sem hún lá hjálparvana í sjóðandi briminu. Þá mælti Chimpy: „Eigum við ekki að fleygja kaðli yfir til þeirra? Hún er strönduð. KJARNAK — Nr. 30 47

x

Kjarnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.